Bræðurnir Adam og Jósef léttir fyrir skák dagsins

Sunway Sitges Chess Festival hátíðinin lauk í dag á Spáni. Íslensku keppendurnir Lenka Ptacnikova landsliðskona og synir hennar, Adam og Josef Omarssynir enduðu öll með 4,5 vinning að loknum tíu umferðum en lokaumferðin var tefld í dag.

242 keppendur tóku þátt í A-flokki og var mótið nokkuð sterkt með 13 stórmeistara á meðal keppenda. Lenka var númer 91 í styrkleikaröð, Josef númer 137 og Adam 147. Það var íranski stórmeistarinn Gholami ásamt spænska stórmeistaranum Lopez Martinez sem urðu efstir með 8 vinninga á mótinu.

Engar skákir voru beint frá íslensku keppendunum þar sem aðeins 27 efstu borðin voru sýnd.

Lenka var vinningahæst íslensku keppendanna, átti ágætis miðkafla móts þar sem hún vann þrjár skákir í röð en endaði með aðeins hálfan úr síðustu fjórum umferðunum. Lenka lenti mikið í ungum og efnilegum skákmönnum þar sem stigin hafa ekki náð getu þeirra og þá vill það oft verða þannig að stigin fara inn í hagkerfið hjá þessum skákmönnum. Lenka tapaði rúmum 48 elóstigum á mótinu.

Adam byrjaði mótið ágætlega með sterkum jafnteflum en lenti svo í því að fá skákmenn í unnvörpum fædda 2007-2012 með skákstig um og undir 1900. Jafnteflin þar kosta og endaði Adam á að tapa 44 elóstigum á mótinu.

Eins og Adam náði Josef ágætis úrslitum snemma móts en náði ekki að fylgja því eftir og átti erfiðan miðkafla. Hann kom eins og aðrir fjölskyldumeðlimir í mark með 4,5 með sigri í lokaumferðinni og slapp með -12 elóstig í tap.

Greinilega erfitt mót stigalega, mikið af ungum skákmönnum og enn og aftur sést að landslagið hefur breyst mikið. Ef til vill eru skákstig fengin heima á fróni orðin „overrated“ stig því Íslendingar virðast að jafnaði lenda í stigatapi á mótum erlendis.

- Auglýsing -