Spennan verður rafmögnuð í Konunglegu óperuhöllinni í Mumbai þar sem þriðja tímabilið af Tech Mahindra Global Chess League (GCL) nær hámarki í dag! Þessi nýstárlega liðakeppni, sem er samstarf FIDE og Tech Mahindra hefur heldur betur verið spennandi. Viswanathan Anand, Gukesh, Alireza Firouzja og Hou Yifan hafi haldið uppi fjörinu síðustu daga Í dag ráðast úrslitin.

Fyrirkomulag keppninnar

Tech Mahindra Global Chess League er ekki hefðbundin skakkeppni. Sex lið – hvert skipað sex leikmönnum (eina „goðsögn“ á borði 1, tveimur karlkyns stórmeisturum á borðum 2-3, tveimur kvenkyns á borðum 4-5 og einum unglingi á borði 6) – kepptu tvöfalda umferð

Leikreglurnar eru hannaðar til að auka spennuna. Annað liðið hefur hvítt á öllum á hitt svart. Tímamörkin eru 20 mínútur á hvern leikmann með 2 sekúndna viðbót frá 41. leik. Sigur með svörtu gefur 4 stig, með hvítu 3 stig, jafntefli 1 stig. Lið fá 3 stig fyrir sigur í viðureign, 1 fyrir jafntefli og 0 fyrir tap. Sagan segir að Gauti Páll hafi í hyggju að taka upp þetta kerfi í næstu atskákkeppni taflfélaga.

Keppnin hefur $1 milljón dollara verðlaunafé. Liðin sem keppa eru: Triveni Continental Kings (meistarar í fyrra), Alpine SG Pipers, PBG Alaskan Knights, Ganges Grandmasters, FYERS American Gambits og upGrad Mumba Masters. Stjörnur eins og Anand (Ganges), Firouzja (Triveni), Gukesh (PBG) og Nakamura (FYERS)

Úrslitin í dag!

Eftir harða baráttu og gríðarlega spennandi umferð í gær þar sem úrslitin réðust í gjörsamlegin í lokin eru toppliðin ljós: Triveni Continental Kings (með Firouzja í fararbroddi) tryggðu sér sæti í úrslitum snemma, en Alpine SG Pipers (með Caruana á fyrsta borði) rétt náðu í annað sætið inn þrátt fyrir tap í síðustu umferð.

Þriðja og fjórða sætið féll til PBG Alaskan Knights og Ganges Grandmasters, sem keppa nú um bronsið.

Lokadagurinn í dag, 23. desember, er hápunkturinn.

  • Þriðja sæti: PBG Alaskan Knights (m.a. Gukesh) á móti Ganges Grandmasters (m.a. Anand). Tvær viðureignir sem hefjast kl. 10:00. PBG hefur komið sterkir til baka eftir erfiða byrjun. Mikil spenna er í Mumbai fyrir skákum Anand og Gukesh.
  • Úrslit: Triveni Continental Kings (meistarar 2ja síðustu ára með (m.a. Firouzja, Wei Yi og Hou Yifan) á móti Alpine SG Pipers (m.a. Caruana, Giri og Pragg). Hefst kl. 13:00. Ef jafnt eftir 2 skákir verður dregið á hvaða borði úrslitaviðureignin fer fram.

Ritstjóri hefur einkar gaman af afar líflegum útsendum Sagar Shah og félaga hans ChessBase India. Á köflum hreint skemmtisjóv.

- Auglýsing -