Taflfélag Vestmannaeyja er Íslandsmeistari í fyrsta skipti í 100 ára sögu félagsins en Vestmannaeyingar tryggðu sér sigurinn með því að leggja Skákdeild Breiðabliks að velli með minnsta mun í lokaumferðinni 4,5-3-5. Óhætt er að segja að sigurinn hafi staðið tæpt, reynsluboltarnir Jóhann Hjartarson og Helgi Ólafsson töpuðu báðir sínum skákum óvænt og tvær síðustu skákirnar héngu á bláþræði til loka. Garðbæingar tryggðu sér sæti í úrvaldsdeild og taka þar sæti Víkingaklúbbsins sem féll.

Úrvalsdeild

Taflfélag Vestmannaeyja – Skákdeild Breiðabliks

Líklegast var fyrir viðureignina að Vestmannaeyjar yrðu að vinna viðureignina þrátt fyrir að leiða mótið með 1 stigi. Oddastig Vestmannaeyja gerðu það að verkum að ef Fjölnismenn myndu vinna gegn TR færu þeir upp fyrir Vestmannaeyinga ef þeim tækist ekki að leggja Breiðablik að velli.

Segja má að hagur Vestmannaeyinga hafi vænkast áður en umferðin hófst. Liðsstjóri Breiðabliks gerði gríðarlega stór mistök og skráði lið sitt vitlaust til leiks. Þetta gerði það að verkum að Breiðablik varð að skilja eftir autt borð á 2. borði og Vestmannaeyjar komnar í 1-0 áður en klukkurnar voru settar í gang!

Björn Þorfinnsson hefur farið mikinn fyrir Eyjamenn nú í seinni hlutanum og hann var einn af fyrstu að láta til sín taka í lokaumferðinni. Björn fékk reyndar aðeins verra tafl úr byrjuninni með hvítu gegn Birki Ísak sem þurfti jafntefli fyrir IM áfanga. Birkir bauð jafntefli en Björn hafnaði.

Í hönd fóru taktískar aðgerðir þar sem Björn sá lengra og fékk vinningsstöðu.

20.Hxe6!! var eini vinningsleikurinn í stöðunni og Bjössi fann hann. 20…Dxf2 (hótar máti á g3) er svarað með 21.Rc5! og svo skákar drottningin út um allt á hvítu reitunum og endar á að taka riddarann á f5 og stendur til vinnings.

Vel gert hjá Birni sem vann allar fjórar skákir sínar með hvítu nú í seinni hlutanum og á mikið í þessum sigri Vestmannaeyinga.

Vignir lenti snemma í erfiðri vörn og lenti í tímahraki gegn Santos Latasa. Vignir var auk þess í tímahraki og verkefnið erfitt. Vestmannaeyingar að líta vel út en á sama tíma voru sviptingar á miðju borðunum.

Benedikt Briem rétti úr kútnum fyrir Blikana. Hann lagði Jóhann Hjartarson að velli með svörtu og nýtti mjög vel sín færi.

Nokkuð óvænt úrslit og segja má að þau hafi verið nokkuð óvænt líka þegar Bárður Örn lagði Helga Ólafsson að velli. Bárður tefldi mjög hvasst, fórnaði tveimur mönnum og vann fyrir sigrinum. Helgi hefði getað varist með bestu taflmennsku en vörnin var erfið í praktík.

Nú voru þrjár skákir eftir og þurftu Vestmannaeyingar jafntefli í þeim öllum. Í flestum skákunum stöðu þeir örlítið höllum fæti. Þorsteinn stýrði sinni skáki í jafntefli og Guðmundur Gíslason fann björgun þegar staða hans virtist vera alveg við þolmörk í endataflinu.

Það var loks Örn Leó sem tryggði jafnteflið. Hann hafði peði minna en þau voru öll á sama væng.

Örn náði „fortressu“ riddari hans og kóngur verða ekki hrakinn og jafnteflið tryggt og þar með titilinn!

Skákdeild Fjölnis – Taflfélag Reykjavíkur

Fjölnismenn gerðu sitt og lögðu TR að velli. Paulius, Titas og Bragi unnu sínar skákir en aðrar enduðu með jafntefli.

Skákdeild KR – Víkingaklúbburinn

Þessi viðureign skipti litlu máli, Víkingar að mestu fallnir nú þegar og KR tók skyldusigur í þessari viðureign.

Lokastaðan

Vestmannaeyjar gerðu sér lítið fyrir og unnu allar sínar viðureignir í seinni hlutanum, hreint ótrúlegur árangur. Síðasta viðureignin stóð tæpt og eins þegar talið er upp úr kössunum munaði mikið um að Simon Williams vann í 6. umferð þegar andstæðingur hans féll á tíma með unnið tafl.

Víkingaklúbburinn fellur í 1. deild.

1. deild

Garðabær tryggði sæti sitt í úrvalsdeild með því að leggja SA að velli.

Akureyri urðu að vinna stóran sigur en efstu þrjú borðin duttu með TG og 2-4 sigur TG dugði til að tryggja sætið.

Akureyri-b og TR-c detta niður í 2. deild að þessu sinni.

2. deild

Dímon a-sveit fór örugglegar upp og það var loks TG-b sveit sem tók 2. sætið á oddastigum gegn Breiðablik-c

S. Austurlands og SSON detta niður í 3.deild

3. deild

Skákfélag Íslands og Víkingaklúbburinn b-sveit kláruðu dæmið í 3. deildinni og fóru upp.

TR-d sveit og Snæfellsbær falla

4. deild

Mislyndu biskuparnir fóru mjög örugglega upp og það var TG c-sveit sem læddist í 2. sætið á oddastigum, rétt fyrir ofan KR-d sveit.

Íslandsmót Skákfélaga 2026

- Auglýsing -