Fimmtu umferð lauk í dag í Stúkunni í Kópavogi þar sem Alþjóðlega Kópavogsmótið – Ungir Meistarar fer fram. Litháinn Paulius Pultinevicius er efstur á mótinu þrátt fyrir tap gegn samlanda sínum Kazakouski í umferðinni. Birkir Ísak hægði flugið á Bárði og Vignir náði í mikið seiglujafntefli!
Kíkjum á skákirnar. Smá tilraunastarfssemi með að hafa bæði pgn-spilarann með skákunum og blanda inn lichess…sjáum hvort kemur betur út til frambúðar!
Birkir Ísak Jóhannsson – Bárður Örn Birkisson
Birkir skemmdi aðeins partýið hjá Bárði og hægði á framgangi hans. Bárður hafði unnið þrjár skákir fyrir þessa skák en varð að lúta í dúk í dag. Birkir kveikt smá von, hann þarf að klára mótið á +1 til að ná 50% sem þarf í IM-áfanga. Enn sýndi Birkir góðan undirbúning og byrjaði ekki að nota tímann fyrr en í 15. leik. Hvíta staðan varð snemma mun betri og skákin eiginnlega bara spurning um raðtækni hjá Birki eftir miðtaflið.
Jaime Santos Latasa – Vignir Vatnar Stefánsson
Vignir tefldi sína þriðju skák við Latasa á innan við hálfu ári, tvisvar á Íslandsmóti Skákfélaga og svo aftur hér. Síðustu tvær með svörtu og virtist stefna í að Vignir myndi tapa aftur með svörtu. Spánverjinn náði að juða peð af Vigni í miðtaflinu og virtist standa nánast til vinnings, vörnin erfið hjá Vigni.
Eftir að tímamörkunum var náð í 40. leik missti Latasa aðeins einbeitinguna með 41.Ke2-d3?
Vignir náði hérna peði til baka, 41…Bxh4. Hvítur stóð enn betur en varnirnar hjá Vigni héldu.
Dagur Ragnarsson – Aleksandr Domalchuk-Jonasson

Slakt mót hjá Aleksandr að þessu sinni. Þótt að skák þeirra Dags hafi verið lengsta skák umferðarinnar var eiginlega alltaf ljóst hvernig hún færi. Aleksandr fékk hartnær óteflandi tafl eftir kraftmikla taflmennsku Dags í byrjuninni. „The rest was a matter of technique“ mætti eiginlega segja!
Valery Kazakouski – Paulius Pultinevicius
Paulius fékk miklu betra tafl með svörtu gegn Kazakouski og hættulega sókn. Hvítur endaði á að setja drottningu sína „í vasann“ á h2 og staða hans virtist varhugavarð. Einhvern veginn missti Paulius algjörlega tökin og Kazakouski náði að snúa taflinu sér í vil.
Hilmir Freyr Heimisson – Mikhaeylo Oleksiyenko
Hilmir virtist fá nokkuð vænlegt tafl með hvítu eftir óhefðbundna leið gegn Sikileyjarvörn Oleksiyenko.
Í stöðunni hefði 20.Bc5!? verið athyglisverður möguleiki og í anda skákstíls Hilmir. Hvítur heldur betra með ýmsum öðrum leikjum en gerður leikur 20.De3? var ekki nógu góður. Svartur gerði umsátur á d5-peðið og vann það og stóð betur. Oleksiyenko hélt góðri stjórn þar til hann lék af sér peði með d5 framrás sinni…svartur stóð samt enn betur.
39.Bc7? hjá Hilmi var freistandi en reyndist lokamistökin. 39…Bxb4! var skemmtilegur og svartur er búinn að búa til mátnet taki hvítur hrókinn. 40.Bxb8 Dh1+ 41.Ke2 De1 og mátar svo á e4! Trikkið með He8 einnig skemmtileg eins og skákin tefldist.
Úrslit umferðarinnar:
Enn og aftur aðeins eitt jafntefli og var það eiginlega vel sloppið þar að auki! Stigahærri skákmaðurinn vann í flestum skákunum.
Staðan:

Paulius heldur toppsætinu. Bárður og Vignir efstir íslensku keppendanna.
Næsta umferð:
Mótið heldur áfram á morgun Stúkunni í Kópavoginum en skákirnar hefjast sem fyrr 15:00, áhorfendur velkomnir. Vignir fær aftur erfiða skák með svörtu, Bárður þyrfti helst að ná úrslitum gegn Degi og sama hjá Birki gegn Hilmi.
Skákdeild Breiðabliks í samstarfi við Helga Ólafsson á mikið hrós skilið fyrir mótahaldið en mót af þessu tagi hefur sárlega vantað fyrir íslenska titilveiðara undanfarin ár. Sigtryggssjóður kom jafnframt sterkur inn í þetta verkefni!

- Skákir á lichess
- Skákir á chess.com
- Mótið á Chess-Results
- Myndir frá mótinu ->
Almennar upplýsingar um mótið:
Staðsetning Glersalurinn á þriðju hæð stúkunnar við Kópavogsvöll. Kaffi og veitingar verða á staðnum.
Dagskrá (9 umferðir, einn hvíldardagur)
Þriðjudagur, 10. mars, kl. 15:00 – Opnunarathöfn og 1. umferðMiðvikudagur, 11. mars, kl. 15:00 – 2. umferðFimmtudagur, 12. mars, kl. 15:00 – 3. umferðFöstudagur, 13. mars, kl. 15:00 – 4. umferð- Laugardagur, 14. mars, kl. 15:00 – 5. umferð
- Sunnudagur, 15. mars, kl. 15:00 – 6. umferð
- Mánudagur, 16. mars – Hvíldardagur
- Þriðjudagur, 17. mars, kl. 15:00 – 7. umferð
- Miðvikudagur, 18. mars, kl. 15:00 – 8. umferð
- Fimmtudagur, 19. mars, kl. 11:00 – 9. umferð
- Fimmtudagur, 19. mars, kl. 16:00 – Lokaathöfn
Keppendur
Meðalstig keppenda er 2432 skákstig og er stigahæsti skákmaður mótsins Jaime Santos Latasa sem varð Íslandsmeistari með Vestmannaeyingum um helgina. Í raun eru fjórir fyrstaborðsmenn úr keppninni með, þeirra á meðal Vignir Vatnar Stefánsson sem fer fyrir heimavarnarliðinu. Aðrir Íslendingar eru flestir titilveiðarar, menn sem gera sér vonir um annaðhvort áfanga að alþjóðlegum meistaratitli eða stórmeistaratitli.
Frekari upplýsingar:
- https://www.kopavogurinternational.is/
- https://www.kopavogurinternational.is/schedule
- https://www.kopavogurinternational.is/blog/categories/players
















