Opnunarhátíð Reykjavíkurskákmótins er á milli 17:30 og 19:00 í Hörpu. Allir velkomnir á staðinn.
Harpa Blitz er árlegt hraðskákmót sem haldið er í tengslum við Reykjavíkurskákmótið. Mótið fer fram þriðjudaginn 24. mars kl. 19:00.
Skráning fer fram keppnisstað á milli 17:00 og 18:30. Þátttökugjöld eru €15 eða ISK 2.250. Hægt er að borga með reiðufé eða kreditkorti. Ekki er hægt að gefa til baka svo keppendur eru beðnir um að koma með nákvæma upphæð ef þeir ætla að greiða með reiðufé.
Hægt er að skrá sig fyrirfram hér: https://forms.gle/99Pf3TnpUp2GD8BE7 ef keppnisgjald er greitt rafrænt
Mótið er öllum opið en athugið að keppendur undir 18 ára þurfa að vera í fylgd forráðamanna þar sem áfengisneysla fer fram á meðan móti stendur.
- Tímamörk: 3 mínútur + 2 sekúndur á leik (3+2).
- Umferðir: 9-11 umferðir (svissneskt kerfi) – mótið getur ekki staðið lengur en til 22:45 sem getur haft áhrif á umferðarfjölda.
- Verðlaun: 50% af þátttökgjöldum sem skiptist svo: 1) 50% 2) 30% 2) 20%. Verðlaun skiptast eftir oddastigum og aðeins eru veit þrenn verðlaun.
Vakin er athygli á því að mótið kemur í staðinn fyrir venjulegt þriðjudagsmót í TR sem fellur niður.
















