Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson virðist vera kominn í gott keppnisform eftir mikla taflmennsku undanfarið. Í gærkvöld gerði hann sér lítið fyrir og varð hlutskarpastur á Harpa Blitz, móti með 153 keppendur frá öllum heimshornum! Áður hafði Vignir tekið 3. sæti á Kópavogur International og unnið Síminn Invitational í mánuðinum.
Vignir var stigahæstur keppenda með 2595 elóstig í hraðskák en á mótinu voru mjög sterkir stórmeistarar og hættulegir ungir meistarar sem greinilega eru grjótharðir í hraðskák.
Vignir lenti í vandræðum þegar hann tapaði strax í 3. umferð eilítið óvænt. WGM frá Kazaksthan náið að verja stöðu sína vel í miklu tímahraki og lenti allt í einu með unnið tafl eftir erfiða vörn. Vignir lét þetta ekki á sig fá, vann sjö skákir í röð og gat leyft sér að semja jafntefli í lokaumferðinni með hartnær unnið tafl til að tryggja sigurinn. Leon Livaic náði Vigni að vinningum en Vignir hafði betur í innbyrðis viðureign þeirra.

Úrslit og staða efstu manna varð eftirfarandi:

Svipmyndir Tómasar Tandra frá mótinu:
View this post on Instagram
















