Landsliðsmaðurinn og alþjóðlegi meistarinn Dagur Ragnarsson og landsliðskonan og FIDE-meistari kvenna Hallgerður Þorsteinsdóttir sitja nú að tafli í Tælandi en tveimur umferðum er lokið þegar þetta er ritað. 241 skákmaður tekur þátt í A-flokki mótsins. Dagur er númer 45 í stigaröðinni en Hallgerður 127. Stigahæstur keppenda er „Lókurinn“ Loek van Wely en þekktastur keppenda og sá sem hefur oftast unnið mótið er önnur goðsögn, Nigel Short. Tefld er ein skák á dag, níu dagar.

Dagur vann erfiðan sigur í fyrstu umferð. Dagur hafði svart og valdi drottningarbragð og snemma var ljóst að andstæðingur Dags, WFM Barchinoy Shokirjonova (1971) vildi reyna allt til að drepa taflið og skipta upp þegar hægt er og var. Dagur þurfti að sýna mikla þolinmæði í jafnvægisstöðu og þolinmæðin skilaði sér. Eftir 42. leik hvíts, 42.Bg8?
Hér nær svartur vinningsstöðu með 42…g4! og byggist það á því að 43.hxg4 yrði svarað með 43…Rxg2 44.Rxg2 h3! þekkt þema þar sem kantpeð er versti óvinur riddara.
Hallgerður var í beinni útsendingu í fyrstu umferð gegn Fjölnismanninum og litháíska landsliðsmanninum Titas Stremavicius. Litháinn skellti h-peði sínu snemma fram gegn Grunfeldsvörn Höllu og þrátt fyrir drottningarkaup snemma þá var kóngsvængur svarts orðinn verulega laskaður snemma. Vandamálin voru fljót að vinda upp á sig og stórmeistarinn náði í sigur.
Skák Höllu í 2. umferð var ekki beint en þar laut hún í dúk gegn ungum Indverja með CM titil, Aarush Dolas. Betur gekk hjá Degi sem aftur þurfti að vera þolinmóður. Mistökin komu á svipuðum tíma, nú í 41. leik svarts 41…Bf4??
Dagur tók 42.Bxf4 gxf4 og fór svo í riddaradans Re7-g6xf4 og svo kom hrókurinn í spilið Ha6-e6-e4 og mát, þvingað!
Dagur með 2 af 2 en Hallgerður ekki enn komin á blað. Í þriðju umferð sem fram fer á morgun klukkan 13:00 að staðartíma hefur Dagur svart gegn alþjóðlega meistaranum Ghosh Aronyak (2533). Hallgerður hefur svart gegn Ástralanum James Watson (1876)
- Heimasíða mótsins
- Skákir á lichess (24 efstu borð)
- Úrslit á chess-results
- Myndasíða mótsins

















