Vignir Vatnar Stefánsson gerði gott jafntefli með svörtu mönnununum gegn spænska landsliðsmanninum Jaime Santos Latassa í tíundu og næstsíðustu umferð á Evrópumóti einstaklinga í Katowice í Póllandi. Taflmennska Vignis var öryggið uppmálað, undirbúningur góður og jafnteflið aldrei íhættu með svörtu mönnunum. Hannes Hlífar gerði líka öruggt jafntefli í sinni skák eftir sjaldgæfan byrjunarleik andstæðings hans. Hilmir Freyr varð að sætta sig við jafntefli líka í maraþonskák þar sem hann pressaði eftir fremsta megni en Josef Omarsson tapaði sinni skák eftir ágætis hrinu góðra úrslita þar á undan.

Vignir var að mæta spænska landsliðsmanninum Jaime Santos Latassa (2610) í fjórða skiptið í kappskák á innan við ári! Mætti kannski segja að þeir séu farnir að þekkja hvorn annan ágætlega. Vignir beitti heilræðum Birkis Ísaks, aðstoðarmanns, og skv. heimildum Skak.is var Birkir ekki alveg sáttur við undirbúning Sindarov á Áskorendamótinu á dögunum í sama afbrigði kom með endurbót á því fyrir svartan. Skemmst er frá því að segja að Jaime fékk ekki úr neinu að moða með hvítu og öruggt jafntefli með svörtu, alltaf góð úrslit gegn 2600+ skákmönnum.
Mikilvægt jafntefli hjá Vigni sem hefur 7 vinninga af 10 og þessi úrslit tryggja það að Vignir hefur örlögin í eigin höndum. Vinni hann í lokaumferðinni kemst hann á Heimsbikarmótið á næsta ári!
Útsending ECU frá 10. umferð:

Hannes hafði svart og mætti georgískum IM Nikoloz Petriashvili (2518) sem kom honum verulega á óvart með 1.a3 í fyrsta leik! Sjaldgæfur leikur sem nánast býður svörtum upp á að hafa hvítt í skákinni!
Fór enda svo að Georgíumaðurinn fékk ekki úr neinu að moða og Hannes náði nokkuð tíðindalitlu jafntefli með svörtu.
Reyndar skondið að hjá báðum Stefánssonum kom upp endataflið H+3p gegn H+3p á sama væng sem er auðvitað steindautt jafntefli en möguleiki er að tefla upp á eitt trikk í þessum stöðum í hraðari skákum eins og sjá má í myndbandinu að neðan:

Hilmir hafði hvítt gegn Roman Kovalskyi (2159) frá Úkraínu. Hilmir tefldi af krafti upp á frumkvæðið en Úkraínumaðurinn var seigur í vörninni og þrátt fyrir að Hilmir reyndi út í það óendanlega brotnuðu varnir svarts ekki í stöðu með mislita biskupa.

Josef hafði svart gegn Emils Janis Mierins (2223) frá Lettlandi. Josef hefur verið að ná góðum úrslitum gegn skákmönnum á þessu styrkleikabili en skákin í dag var ekki góð. Spurning hvort að það þurfi ekki að setja þetta tiltekna afbrigði í smá kælingu og víkka vopnabúrið, eins og Magnus Carlsen mælir með…aldrei gott að vera „sitjandi önd“

Vignir hefur eftir umferðina 7 vinning af 10 mögulegum og Hannes hefur 6 vinninga. Á eftir þeim koma Hilmir með 5 vinnings og Josef með 4 vinninga.
Í lokaumferðinni sem fram fer klukkan 13:00 á morgun sunnudag verður fróðlegt að sjá pörun. Fréttin verður uppfærð þegar pörun liggur fyrir!
Um mótið:
Evrópumót einstaklinga fer fram í Katowice í Póllandi 7-19. apríl en teflt er á hverjum degi en frídagar 11. og 17. apríl. Tefldar eru 11 umferðir um Evrópumeistaratitilinn og jafnframt sæti á Heimsbikarmótinu, mikið í húfi. Sætin eru eftirsótt þar sem Heimsbikarmótið er ávallt eitt vinsælasta mótið þegar það fer fram (annað hvert ár) og jafnframt getur það verið leið til að komast á Áskorendamótið (sem er nú í gangi).
Alls taka 501 skákmenn þátt á mótinu og eru íslensku keppendurnir fjórir. GM Vignir Vatnar Stefánsson (2512) er númer 74 í stigaröðinni, GM Hannes Hlífar Stefánsson (2414) er númer 154 í stigaröðinni, IM Hilmir Freyr Heimisson (2297) er númer í 256 stigaröðinni og Josef Omarsson (2045) er númer 400 í stigaröðinni. Stigahæstur er Igor Kovalenko (2685) frá Úkraínu.
Íslensku keppendurnir eru (sjá myndband):


















