Fjórða umferð fór fram í dag á Heimsmeistaramóti öldungasveita sem fram fer í Durres í Albaníu. Íslensku sveitirnar unnur allar viðureignir sínar þrjár í 50+ og 65+ flokkunum, sannarlega góður dagur!
65+ flokkur
Margeir hvíldi í dag.

Helgi hafði svart gegn Gerard Welling, alþjóðlegum meistara. Það vill einhverra hluta vegna gleymast að Helgi er býsna góður með svörtu mönnunum líka og skákir hans í 2. umferð og þessi í 4. umferð vintage-slátranir hjá GM Olafssyni! Menn skilja hvernig skákstíll Helga fékk viðurnefnið „Veggurinn“. Welling hefur allavega fundið það í dag, Helgi stillti upp vegg með ógnarstjórn á d5-reitnum, ýmist með riddara eða kóng.
Jón L. einfaldlega klassamun betri en sinn andstæðingur og yfirspilunin í miðtaflinu algjör. Jón fór í endatafl tveimur peðum yfir og vann auðveldlega.
Þorsteinn gerði nokkuð öruggt jafntefli með svörtu.
Áskell fékk gefins peð snemma í miðtaflinu og nægði það!
Úrslit:

Fín úrslit og nokkuð þægilegur dagur, íslenska liðið með 6 stig.
50+ flokkur
Rúnar Sigurpálsson hvíldi hjá íslenska liðinu í 50+
England-3 er samsett af þremur bræðrur, Ledgerarnir!
Á efsta borði tefldi Jóhann við stigahæsta Ledgerinn með svörtu og úr varð rólegt jafntefli. Væntanlega kærkomið eftir næstum 130 leikja skák í gær!
Á öðru borði tefldi Þröstur hvasst afbrigði gegn Winawer-franskri vörn og úr varð skemmtileg skák. Kóngsstaða svarts var alltaf varhugaverðari og Þröstur náði að reita peð af svörtum og hróksendataflið var svo vel útfært hjá Þresti.
Á þriðja borði náði Karl Þorsteins að fá betra í miðtaflinu og fékk fína stöðuyfirburði. Hvítur náði að halda stöðu sinni saman og Karl komst ekki í gegn og loks einfaldaðist taflið full mikið og jafntefli virtist óumflýjanlegt. Ekki ósvipað og í skák Jóns L. í gær var það farlama hrókur sem réði úrslitum!
Hvernig þessum Ledger bróður tókst að troða hrók sínum á b3 er rannsóknarefni en leikþröngin í lokastöðunni er allvega frekar fyndin!
Ágúst Sindri fékk greinilega lang-lakasta-Ledgerinn en þessi bróðir fór niður í ljóslifandi logum í 23 leikjum! Þægilegur sigur sem kom snemma og gerði ákvarðanatökur auðveldari á hinum borðunum.
Lokaniðurstöður 3.5-0.5 íslenska liðinu í vil.


Vestfirðingarnir unnu með minnsta mun aðra viðureignina í röð! Guðmundurarnir unnu báðir.
Báðar íslensku sveitirnar eru því með 6 stig að loknum fjórum umferðum.
- Heimasíða mótsins
- Mótið á chess-results 50+ | 65+
- Skákir á lichess 50+ | 65+
Um mótið:
Heimsmeistaramót öldungasveita fer fram í Durres í Albaníu 19-28. apríl. Tefldar eru 9 umferðir. Ísland teflir fram þriðju stigahæstu sveitinni í flokki 65+ og fimmtu stigahæstu sveitina í flokki 50+. Sveit eingöngu skipuð Vestfirðingum í flokki 50+ er svo ellefta stigahæsta sveitin.
Sveit Íslands í 65+
GM Helgi Ólafsson – 2439
GM Margeir Pétursson – 2387
GM Jón L. Árnason – 2407
FM Þorsteinn Þorsteinsson – 2220
IM Áskell Örn Kárason – 2121
Sveit Íslands í 50+ skipa
GM Jóhann Hjartarson – 2466
GM Þröstur Þórhallsson – 2392
IM Karl Þorsteins – 2404
FM Ágúst S. Karlsson – 2224
FM Rúnar Sigurpálsson – 2236
Sveit Vestfirðinga er skipuð:
FM Guðmundur Gíslason – 2251
CM Magnús P. Örnólfsson – 2163
FM Halldór Grétar Einarsson – 2173
CM Guðmundur Halldórsson – 2105


















