Íslandsmót skákfélaga 2026-27 – fyrri hluti

    0
    270
    Hvenær:
    8. október, 2026 @ 19:00 – 11. október, 2026 @ 16:00
    2026-10-08T19:00:00+00:00
    2026-10-11T16:00:00+00:00
    Hvar:
    Menntaskólinn við Hamrahlíð
    Hamrahlíð 10
    105 Reykjavík
    Ísland
    Íslandsmót skákfélaga 2026-27 - fyrri hluti @ Menntaskólinn við Hamrahlíð | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland
    Fyrri hluti Íslandsmóts skákfélaga 2026-27 fer fram dagana 8.–11. október 2026.
    Mótsupplýsingar:
    Fyrsta umferð í úrvalsdeild hefst fimmtudaginn 8. október kl. 19:00 í Taflfélagi Reykjavíkur (Faxafen 12).
    Aðrar umferðir (og allar umferðir annarra deilda) fara fram í Menntaskólanum við Hamrahlíð (Hamrahlíð 10).
    Umferð / Deild Dagur Dagsetning Tími Staður
    1. umferð – Úrvalsdeild Fimmtudagur 8. október 19:00 TR
    Aðrar umferðir (úrvalsdeild + allar aðrar deildir) Föstudagur 9. október 19:00 MH
    Laugardagur 10. október 11:00 og 17:30 MH
    Sunnudagur 11. október 11:00 MH
    Tímamörk:
    • Úrvalsdeild: 90 mínútur fyrir fyrstu 40 leiki, auk 15 mínútna eftir 40 leiki, með 30 sekúndna viðbótartíma á hvern leik.
    • Aðrar deildir: 90 mínútur á skákina með 30 sekúndna viðbótartíma á hvern leik.
    Þátttökugjöld 2026-27
    Ferðakostnaður:
    Skáksamband Íslands endurgreiðir ferðakostnað innanlands fyrir keppendur sem koma langt að. Allt að 30.000 kr. í úrvalsdeild fyrir þá sem tefla allar fimm umferðirnar, en 15.000 kr. fyrir aðra í úrvalsdeild og 1. deild, gegn framvísun kvittana. Enginn ferðakostnaður er endurgreiddur fyrir aðrar deildir.
    Skráning:
    Skráningarfrestur:
    • Úrvalsdeild, 1. deild, 2. deild og 3. deild: 15. september 2026
    • deild: 1. október 2026
    Félagaskipti:
    Síðasti möguleiki fyrir félagaskipti er 18. september 2026 kl. 23:59. Skákmenn án félags og alþjóðlegra kappskákstiga eru undanþegnir þessum fresti.
    Síðari hluti mótsins:
    Síðari hluti Íslandsmóts skákfélaga 2026-27 er áætlaður dagana 5.–8. mars 2027 (endanleg dagsetning og staðsetning verða staðfest síðar).
    MÓTSREGLUR
    • Mæta þarf innan 30 mínútna eftir að umferð hefst. Annars er dæmt tap.
    • Öll notkun rafeindatækja (símar, snjallúr, heyrnartól) er stranglega bönnuð í skáksal.
    • Liðstjórum er óheimilt að hafa afskipti af einstökum skákum á meðan teflt er (samkvæmt FIDE-reglum).
    Nánari upplýsingar
    - Auglýsing -