Í dag fór fram tíunda og næst-síðasta umferð á EM kvenna sem fram fer í Batumi í Georgíu. Íslandsmeistari kvenna, Lenka Ptacnikova átti náðugan dag og lagði Barbare Ashotie (1913) frá Georgíu að velli í umferð dagsins.
Lenka hafði svart og upp kom tveggja-riddara afbrigðið í sikileyjarvörn. Lenka fékk þægilega stöðu og svo þægilega sókn þegar hrókar var á sitthvorum vængjum. Sú georgíska villtist nokkuð ráðvillt á þeim kafla og sókn Lenku varð ákveðnari og bar ávöxt.
Lenka hefur nú 4,5 vinning og mætir Andzhelika Nenova (2072) frá Búlgaríu í lokaumferðinni.
Alls taka 165 skákkonur þátt á mótinu og þeirra stigahæst er Stavroula Tsolakidou frá Grikklandi. Lenka er númer 102 í styrkleikaröðun á mótinu. Teflt er á hverjum degi, utan eins frídags.
- Auglýsing -


















