Sjöunda umferð var tefld í dag á EM öldunga á Acqui Terme á Ítalíu fer hún ekki í sögubækurnar nema menn vilji skrá slæmu kaflana. Skemmst er frá því að segja að allar skákirnar þrjár hjá íslensku keppendunum í 50+ flokknum töpuðust og fjara vonir um titil nokkuð mikið við þau úrslit. Margeir Pétursson var sá eini sem náði úrslitum í dag en hann vann sína skák í 65+ flokknum.
Flokkur (50+)
Jóhann og Henrik höfðu 5 vinninga og voru í skiptu efsta sæti ásamt Degraeve og Mrva fyrir umferðina. Þröstur hafði 4 vinninga.
Degraeve náði að véla peð af Jóhanni í miðtaflinu og hafði auk þess áframhaldandi pressu og fékk stórhættulegt frípeð þegar leið á. Vörnin of erfið og Jóhann laut í dúk, hans fyrsta tap á mótinu.
Styrkleiki Henriks er yfirleitt í endatöflum en í dag var Mrva harðari í hróksendataflinu og náði að knésetja Henrik.
Þresti urðu mislagðar hendur í miðtaflinu og fékk andstæðingur hans alltof virka stöðu og náði í kjölfarið að hreinsa peð svarts á drottningarvæng og var með unnið endtafl þegar Þröstur gafst upp.
Jóhann og Henrik hafa áfram 5 vinninga og Þröstur 4 vinninga.
8. umferð fer fram á morgun og þar fær Jóhann hvítt gegn Henrik en Þröstur mætir finnsku landsliðskonunni Johanna Pasikangas.
Stórmeistararnir Jóhann Hjartarson (2467), Henrik Danielsen (2466) og Þröstur Þórhallsson (2397) taka þátt í þessum flokki. Þeir eru nr. 2-4 í stigaröð keppenda en 88 skákmenn taka þátt. Stigahæstur í flokknum er franski stórmeistarinn Jean-Marc Degrave (2494).
Flokkur (65+)
Margeir var með 4,5 af 6 fyrir umferðina og mætti FIDE meistaranum Milan Kolesar frá Slóvakíu. Margeir þjarmaði jafnt og þétt að honum og þegar Kolesar tapaði peði molnaði öll mótspyrna og Margeir vann.
Margeir nú með 5,5 af 7 og mætir efsta manni, Zurab Sturua. Margeir hefur hvítt og gæti komist í forystuna með sigri og þar með dauðafæri á titlinum!
Margeir Pétursson (2393) tekur þátt einn Íslendinga í þessum flokki. Hann er nr. 4 í stigaröð keppenda af 125 þátttakendum. Stigahæstir eru Zurab Sturua og Ljubomir Ftacnik.
















