Alþjóðlega mótinu í Teplice, Teplice Open lauk í dag í Tékklandi. Íslandsmeistari kvenna Lenka Ptacnikova (2106) endaði mótið á góðum nótum, gerði jafntefli í lokaumferðinni og fékk 2,5 vinning úr síðustu þremur skákunum.
Lenka lagði skákmann frá Singapore, Hong Ming Teo (1930) að velli í 8 umferðinni og gerði svo jafntefli með svörtu í lokaumferðinni gegn sterkum Tékka Zdenek Davidek (2262).
Lokaniðurstaðan 4,5 vinningur af 9 og tapar Lenka 11 elóstigum á mótinu. Alþjóðlegi meistarinn Jan Vykouk (2487) vann óvæntan sigur með 8 vinninga en 9 og hafði þarmeð betur en Íslandsvinurinn og Fjölnismaðurinn Paulius Pultinevicius (2562) sem endaði með 7,5 vinning í 2. sæti.
- Auglýsing -

















