Sumarskákmót Vinaskákfélagsins

    0
    13
    Hvenær:
    6. júlí, 2026 @ 13:00 – 16:00
    2026-07-06T13:00:00+00:00
    2026-07-06T16:00:00+00:00
    Hvar:
    Vin
    Hverfisgata 47
    101 Reykjavík
    Ísland
    Sumarskákmót Vinaskákfélagsins @ Vin | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Hið árlega sumarskákmót Vinaskákfélagsins verður haldið mánudaginn 6 júlí 2026, kl: 13, í Vin að Hverfisgötu 47. Teflt verður úti og inni, en ef það rignir, þá frestast skákmótið til mánudagsins 13 júlí.

    Mótið heitir „Sumarskákmót Vinaskákfélagsins 2026“.

    Undirtitill: „Meistaramót Vinaskákfélagsins í hraðskák 2026“.

    Tefldar verða 6 umferðir með 4 mín. + 2 sek., á skák.

    Ef tveir verða efstir og jafnir, þá keppa þeir til úrslita um sigurinn í „bráðabana“, þar sem hvítur hefur 5 mínútur og svartur 4 mínútur og nægir svörtum jafntefli til að vinna.

    Einnig er keppt um það hver verður Hraðskákmeistari Vinaskákfélagsins 2026.

    Margir sterkir skákmenn hafa tekið þátt í þessu móti.

    Skákdómari er Róbert Lagerman og mótstjóri er Hörður Jónasson.

    Mótið verður reiknað til hraðskákstiga.

    Þátttökugjald er 1.500 kr. Frítt fyrir unglinga U-16. Frítt fyrir félaga í Vinaskákfélaginu.

    Í hléi verður boðið upp á kaffi og vöfflur.

    Aðalverðlaun:

    1. Sæti. Gull verðlaunapeningur + 15.000 kr.
    2. Sæti. Silfur verðlaunapeningur + 10.000 kr.
    3. Sæti. Brons verðlaunapeningur + 5.000 kr.

    Verðlaun félaga í Vinaskákfélaginu:

    1. Sæti. Áritun á Farandbikar + gull verðlaunapeningur + skákbók.
    2. Sæti. Silfur verðlaunapeningur + skákbók.
    3. Sæti. Brons verðlaunapeningur + skákbók.

    Skráningarform er inn á heimasíðu félagsins: Sumarskákmót Vinaskákfélagsins 2026

    Þegar skráðir skákmenn: Sumarskákmót Vinaskákfélagsins 2026

    Allir velkomnir!!

    - Auglýsing -