Arkady Dvorkovich, forseti Alþjóðaskáksambandsins (FIDE) síðan 2018, hefur ákveðið að afsala sér tímabundið völdum og skyldum sínum sem forseti FIDE. Ákvörðunin var tilkynnt í gær eftir að Evrópusambandið setti hann á lista 21. pakka viðskiptaþvingana sinna gegn Rússlandi.
Dvorkovich kallar ákvörðun ESB „ólögmæta og ósanngjarna“ og hyggst skjóta henni til dómstóla, en segir að viðskiptaþvinganirnar gætu hindrað eðlilega starfsemi FIDE á meðan þær standa og því stigi hann til hliðar með hagsmuni FIDE í huga.
Í yfirlýsingu sinni, sem FIDE birti á X, skrifaði hann meðal annars: „Ég hef ákveðið að afsala mér sjálfviljugur völdum og skyldum sem forseti FIDE þegar í stað og og það gildir á meðan ég er beittur viðskiptaþvingunum ESB.
Statement by FIDE President Arkady Dvorkovich
Today, the EU decision to include my name in the 21st sanctions list was published. I want to state unequivocally that I consider this decision unlawful and unfair, and this decision will be immediately challenged by all possible… pic.twitter.com/SmiinxF71u
— International Chess Federation (@FIDE_chess) July 23, 2026
Nú tekur varaforseti sambandsins, einn besti skákmaður allra tíma og margfaldur heimsmeistari Viswanathan Anand, við sem forseti tímabundið á meðan viðskiptaþvinganirnar gilda.
Following the decision by President Arkady Dvorkovich to suspend the exercise of his duties, and in accordance with the FIDE Charter, I have assumed the responsibilities of Interim President.
I want to thank Arkady for his leadership and for putting the interests and stability… https://t.co/KexdV5WLal
— Viswanathan Anand (@vishy64theking) July 24, 2026
Dvorkovich og FIDE
Arkady Vladimirovich Dvorkovich fæddist 26. mars 1972. Dvorkovich er hagfræðingur að mennt (útskrifaður frá Moskvu-háskóla og Duke-háskóla í Bandaríkjunum) og starfaði sem aðstoðarforsætisráðherra Rússlands 2012–2018. Hann var fyrst kjörinn forseti FIDE árið 2018 í Batumi og endurkjörinn 2022 í Chennai.
Á valdatíma hans hefur FIDE tekið miklum breytingum frá tíma Kirsan Ilyumzhinov og hans kumpána og má þar nefna að tekjur FIDE hafa fimmfaldast, verðlaun hækkað verulega og gjöld til skáksambanda og skákmanna lækkuð á sama tíma.
Dvorkovich hefur verið gagnrýndur fyrir tengsl við rússnesk stjórnvöld og stuðning við innlimun Krímskaga en var í ríkisstjórn Rússlands þegar hún fór fram. Segja má að þetta hafi orðið honum að falli sem og skákstarfsemi Rússa á herteknum svæðum Úkraínu. Hér má skýringu ESB á því af hverju hann er beittur viðskiptaþvingunum.
Arkady Dvorkovich is now officially listed on EU’s sanction list. pic.twitter.com/1xfA6iDKTu
— Tarjei J. Svensen (@TarjeiJS) July 23, 2026
Kosningarnar 2026 – fresturinn rennur út á sunnudag
Kosningar til forseta og varaforseta FIDE fara fram á alþingi sambandsins í Samarkand, Úsbekistan, 26.–27. september 2026.
Frestur til að skila framboðum til forseta og varaforseta rennur út 26. júlí 2026 kl. 16:00. Hvert framboð þarf stuðning að minnsta kosti fimm landssambanda (að minnsta kosti eitt frá hverri heimsálfu, en ekki fleiri en átta samtals).
Frambjóðendur sem hafa tilkynnt framboð
- Wadim Rosenstein (Þýskaland, stofnandi WR Chess) með Gordon Tang (Kína) sem varaforsetaefni. Rosenstein tilkynnti framboð sitt formlega á X 26. júní.
Dear chess friends,
Today, I am announcing my candidacy for the presidency of FIDE.
I love chess. It has shaped my life, my way of thinking, and even the way I built my businesses. Chess deserves an organization that matches its greatness.
Today, FIDE has many dedicated people… pic.twitter.com/46kJWFaRf4
— Wadim Rosenstein (@WadimRosenstein) June 26, 2026
Rosenstein er umdeildur í skákheiminum. Hann kom skyndilega fram sem stór styrktaraðili eftir allherjarinnrás Rússlands í Úkraínu 2022 og hefur fjárfest mikið í skák (WR Chess). Mesta gagnrýnin beinist að því að hann tefldi við Sergey Karjakin í Moskvu í maí 2022, stuttu eftir að Karjakin var bannaður af FIDE vegna opinbers stuðnings við innrásina. Gagnrýnendur telja að þetta sýni nánari tengsl við rússneska skákheiminn en Rosenstein hefur viljað viðurkenna. Rosenstein hefur sjálfur skýrt bakgrunn sinn: fæddur í Úkraínu 1990, flutti til Þýskalands þegar hann var átta ára, er þýskur ríkisborgari, en á einnig rússneskar rætur í gegnum móður sína og reyndar úkraínskar í gegnum faðir sinn. Þýska skáksambandið styður hann og tilnefnir sem sinn frambjóðenda.
- Jan Henric Buettner (Þýskaland, meðstofnandi Freestyle Chess) með Malcolm Pein (England, alþjóðlegur meistari, mjög kunnur skipuleggjandi skákviðburða og blaðamaður) sem varaforsetaefni.
Jan Henric Buettner:
„FIDE has over 200 national federations as its ultimate beneficial stakeholders. A stronger FIDE must mean stronger national federations“.Jan has a tremendous and transparent background in internet ventures, investment and hospitality. He was involved in… pic.twitter.com/8IJBKSwOgC
— George Mastrokoukos (@GMastrokoukos) June 26, 2026
- Kirsan Ilyumzhinov (Rússland), forseti FIDE í 23 ár (1995–2018). Fyrrverandi forseti Kalmýkíu hefur formlega tilkynnt framboð sitt á ný. Hann lofar meðal annars að fá Magnus Carlsen aftur inn hefðbunda skák án þess að færa fyrir því einhver rök að það sé mögulegt. Ilyumzhinov er þekktur fyrir litríka og umdeilda stjórnartíð. Meðal annars umdeildar heimsóknir til Líbýu og Sýrlands. Nánari upplýsingar eru á kirsan.org.
Илюмжинов заявил, что будет баллотироваться на пост президента ФИДЕ: «Беру на себя обязательство завершить начатую работу»
Илюмжинов заявил, что будет баллотироваться на пост президента ФИДЕhttps://t.co/bsYsOlHxYm pic.twitter.com/AaOYfuzp9s— Кирсан Илюмжинов (@Kirsan__) July 20, 2026
Dvorkovich hafði áður tilkynnt að hann hygðist bjóða sig fram í þriðja sinn og hafði tilnefnt Timur Turlov (Kasakstan) sem varaforsetaefni sitt. Eftir viðskiptaþvinganirnar er óljóst hvort sá listi geti staðið óbreyttur eða hvort nýtt framboð verði sett fram fyrir frestinn. Margir telja að Turlov verið nú forsetaefni í stað Dvorkovich. Hann er fæddur í Rússlandi en býr í Kasakstan. Hann rekur fyrirtækið Freedom Holding sem er á bandaríska hlutabréfamarkaðnum. Hann hefur verið stærsti styrktaraðili FIDE um langt árabil.
♟ Chess, concentration, and community: An interview with Timur Turlov
The FIDE ISCF World Schools Team Championship has grown rapidly since its pilot edition in Aktau in 2023, developing into a global cycle spanning four continents. During the African Continental Stage in… pic.twitter.com/GNahkK62er
— International Chess Federation (@FIDE_chess) July 9, 2026
Næstu tveir dagar gætu verið viðburðarríkir en framboðsfrestur rennur út kl. 16 á sunnudaginn. Skák.is ætlar að hafa puttann á púlsinum fræga um helgina.















