Skáksamband Íslands vekur athygli á nýrri reglugerð um styrktarsjóð sambandsins og hvetur skákmenn og aðra styrkþega sem eiga rétt á styrk samkvæmt reglugerðinni til að kynna sér reglurnar og sækja um.

Samkvæmt nýrri reglugerð er almennur umsóknarfrestur til 15. ágúst ár hvert. Þar sem þetta er í fyrsta sinn sem nýju reglurnar eru teknar í notkun hefur stjórn Skáksambands Íslands ákveðið að framlengja umsóknarfrestinn í þetta sinn til 15. september 2026.

Umsækjendum er bent á að kynna sér nýju reglugerðina áður en umsókn er send inn, þar sem hún kveður á um fyrirkomulag styrkveitinga og þau skilyrði sem umsóknir þurfa að uppfylla.

Umsóknarfrestur árið 2026 er því til 15. september. Skáksamband Íslands hvetur þá sem hyggjast sækja um styrk að kynna sér reglurnar tímanlega og senda inn umsókn innan frests.

Umsókn um ferðastyrk erlendis

 

- Auglýsing -