Fjórða umferð var tefld í dag á EM taflfélaga í Búdva í Svartfjallalandi. A-sveit Breiðabliks heldur áfram fínu gengi sínu og unnu sinn annan sigur í röð og aftur stórt! Akureyringar halda einnig áfram að ná í góð úrslit og slátruðu tyrknesku liði í dag. Breiðablik-b og Víkingaklúbburinn töpuðu sínum viðureignum.
Breiðablik A – Zuid-Limburg 5–1
A-lið Breiðabliks hélt áfram á frábæru skriði og vann stórsigur á Zuid-Limburg, 5–1. Hilmir Freyr Heimisson, Birkir Ísak Jóhannsson, Bárður Örn Birkisson og Benedikt Briem unnu sínar skákir en Vignir Vatnar Stefánsson og Björn Hólm Birkisson gerðu jafntefli.
| Borð | Breiðablik A | Úrslit | Zuid-Limburg |
|---|---|---|---|
| 1 | GM Vignir Vatnar Stefánsson (2534) | ½–½ | FM Philipp Leon Klaska (2368) |
| 2 | IM Hilmir Freyr Heimisson (2365) | 1–0 | FM Carlo Pauly (2340) |
| 3 | FM Birkir Ísak Jóhannsson (2306) | 1–0 | CM Luc Zimmermann (2124) |
| 4 | FM Bárður Örn Birkisson (2264) | 1–0 | Bob Merx (2008) |
| 5 | CM Benedikt Briem (2239) | 1–0 | Thao Luong (1906) |
| 6 | CM Björn Hólm Birkisson (2234) | ½–½ | Laurin Perkampus (2165) |
Lokatölur: Breiðablik A 5–1 Zuid-Limburg
SDP Wachtebeke – Breiðablik B 4½–1½
B-lið Breiðabliks fékk mjög sterka mótherja frá Belgíu og tapaði 1½–4½. Stephan Briem vann glæsilegan sigur á georgíska stórmeistaranum Levan Aroshidze á fyrsta borði og Guðrún Fanney Briem gerði jafntefli á sjötta borði, góður dagur hjá Briem fjölskyldunni!
| Borð | SDP Wachtebeke | Úrslit | Breiðablik B |
|---|---|---|---|
| 1 | GM Levan Aroshidze (2521) | 0–1 | Stephan Briem (2154) |
| 2 | IM Alex Villa Tornero (2466) | 1–0 | Arnar Milutin Heiðarsson (2104) |
| 3 | WGM Anastasiya Rakhmangulova (2300) | 1–0 | Davíð Kolka (2043) |
| 4 | IM Ann Matnadze Bujiashvili (2305) | 1–0 | Markus Orri Jóhannsson (1982) |
| 5 | FM Joey Grochal (2241) | 1–0 | Birkir Hallmundarson (1888) |
| 6 | CM Dennis van Vliet (2018) | ½–½ | WFM Guðrún Fanney Briem (1927) |
Lokatölur: SDP Wachtebeke 4½–1½ Breiðablik B
Bursa Buyuksehir Belediyespor – Akureyri 1–5
Akureyringar áttu frábæran dag og unnu tyrkneska liðið Bursa Buyuksehir Belediyespor 5–1. Margeir Pétursson, Magnús P. Örnólfsson, Halldór Halldórsson, Áskell Örn Kárason og Bogi Pálsson unnu allir sínar skákir. Gauti Páll Jónsson tapaði á þriðja borði.
| Borð | Bursa Buyuksehir Belediyespor | Úrslit | Akureyri |
|---|---|---|---|
| 1 | Ismail Caliskan (1746) | 0–1 | GM Margeir Pétursson (2386) |
| 2 | Ismail Cinar Keloglu (1973) | 0–1 | CM Magnús P. Örnólfsson (2143) |
| 3 | CM Ervin Ozkan (2208) | 1–0 | Gauti Páll Jónsson (2121) |
| 4 | CM Necmettin Korkmaz (2114) | 0–1 | CM Halldór Halldórsson (2078) |
| 5 | Burak Alp Mutlu (1935) | 0–1 | IM Áskell Örn Kárason (2135) |
| 6 | Ilkay Koc (1890) | 0–1 | Bogi Pálsson (2094) |
Lokatölur: Bursa Buyuksehir Belediyespor 1–5 Akureyri
LSG – Víkingur 4½–1½
Víkingar mættu sterku þýsku liði LSG og töpuðu 1½–4½. Sigurbjörn Hermannsson vann á sjötta borði og Páll A. Þórarinsson gerði jafntefli á öðru borði.
| Borð | LSG | Úrslit | Víkingur |
|---|---|---|---|
| 1 | GM Jan Smeets (2564) | 1–0 | IM Tapani Sammalvuo (2363) |
| 2 | IM Jan-Willem de Jong (2408) | ½–½ | FM Páll A. Þórarinsson (2172) |
| 3 | IM Edwin Van Haastert (2361) | 1–0 | CM Jón Árni Halldórsson (2037) |
| 4 | IM Thomas Willemze (2327) | 1–0 | CM Gunnar Rúnarsson (2001) |
| 5 | IM Michiel Bosman (2286) | 1–0 | Halldór Pálsson (1991) |
| 6 | Marnix Hofman (2201) | 0–1 | Sigurbjörn Hermannsson (1917) |
Lokatölur: LSG 4½–1½ Víkingur
Björn Þorfinnsson vann aftur fyrir Cheddleton en þeir eru í mjög góðum gír og fá sterka sveit á morgun. Alþjóðlegi meistarinn Richard Pert með 4 af 4 í sveitinni eftir sigur gegn van Foreest í gær og vann sigur í dag með smá heppnisbrag.
Skák Björns:
Ingvar Þór hvíldi hjá Kingston Kings og Ásta Kristbjörnsdóttir laut í dúk í sinni skák.
Blikar fá þétta þýska sveit frá Berlín, númer 15 í röðinni en eiga að eiga möguleika gegn þeim á góðum degi. Akureyringar fá þétta sveit heimamanna í Mimoza en eiga einnig fína möguleika á pappír. Breiðablik-b mætir Kingston Kings og Víkingar mæta írskri sveit.
Fjórar sveitir eru enn efstar og jafnar en súpersveitirnar fara að mætast frá og með næstu umferð!
















