Í gær hófst Skakþing Akureyrar á 100 ára afmælisári. Átta keppendur eru skráðir til leiks og munu allir tefla við alla. Dregið var um töfluröð og er hún eftirfarandi.
1. Stefán G. Jónsson
2. Arnar Smári Signýjarson
3. Benedikt Stefánsson
4. Rúnar Sigurpálsson
5. Sigurður Eiríksson
6. Símon Þórhallsson
7. Smári Ólafsson
8. Andri Freyr Björgvinsson.
Í fyrstu umferð urðu úrslit samkvæmt hinni frægu bók. Þeir sem eru hærri á stigum unnu sínar skákir.
Stefán – Andri 0-1
Arnar – Smári 0-1
Benedikt – Símon 0-1
Rúnar – Sigurður 1-0
Strax í næstu umferð, sem tefld verður á fimmtudag kl. 18 mun draga til tíðinda en þá mætast tveir stigahæstu keppendur mótsins, þeir Símon Þórhallsson og Rúnar Sigurpálsson. Hinn ungi Símon stýrir þá hvítu mönnunum.
- Auglýsing -
















