Ian Nepomniachtchi (2763) er efstur á Tata Steel-mótinu í Sjávarvík eftir sigur á Vladimir Kramnik (2777) í þriðju umferð í gær. Nepo hefur 2½ vinning. Ding Liren (2813) og Vishy Anand (2773) koma næstir með 2 vinninga. Magnús Carlsen (2835) gerði sitt tuttugusta jafntefli í röð (!!) þegar hann gerði jafntefli við Sanotsh Vidit (2695).
Carlsen: „First of all, it’s great to celebrate my 20th draw, against the master himself …“ <grin>“ #TataSteelChess @anishgiri https://t.co/W2H1vFxpJW
— Tarjei J. Svensen (@TarjeiJS) January 14, 2019
Fjórða umferð fer fram í dag. Þá teflir Carlsen við Kramnik sem er neðstur á mótinu með hálfan vinning. Nepo mætir Mamedyarov (2817).
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (kl. 12:30)
- Auglýsing -

















