Það hefur töluvert vatn fallið til Sjávar(víkur) síðan Skák.is fjallaði síðast um Tata Steel-mótið í Wijk aan Zee. Heimsmeistarinn, Magnús Carlsen (2835), vann Mamedyarov (2817) í sjöttu umferð. Í sjöundu umferð í gær mátti hann hafa sig allan við að halda jafntefli á móti Fedoseev (2724). Afburða endataflstækni hjálpaði honum þar. Anand (2773), lagði „hinn gamla manninn“, Kramnik (2777) að velli í gær. Þeir hafa 4½ vinning og eru efstir ásamt Nepo (2763), Ding Liren (2813) og Anish Giri (2783).
Áttunda umferð hófst núna kl. 12:30. Carlsen teflir við Richard Rapport (2731).
Nánar á Chess.com
- Heimasíða mótsins
- Beinar útsendingar (oftast kl. 12:30)
- Auglýsing -
















