Ian Nepomniachtchi (2775) er í miklum ham um þessar mundir. Hann hefur byrjað best allra á Grand Chess Tour-mótinu í Zagreb í Króatíu og hefur fullt hús eftir þrjár umferðir. Hann vann góðan sigur á Shakhriyar Mamedyarov (2774) í gær. Nepo er nú kominn í fjórða sætið á lifandi skákstigum með 2791 skákstig.
Öðrum skákum lauk með jafntefli og þar með skák Magnúsar Carlsen (2875) og Fabiano Caruana (2819). Heimsmeistarinn er í 2.-3. sæti með 2 vinninga ásamt Wesley So (2754).
Ítarlega umfjöllun má finna á Chess.com.
Fjórða umferð hefst í dag kl. 14.30. Carlsen mætir Mamedyarov en Nepo teflir við Sergey Karjakin (2748).
Umfjöllun Ingvars Þórs Jóhannessonar um skák Carlsens og Anands úr 2. umferð má finna hér:
- Auglýsing -















