Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2561) byrjaði ekki vel á lokuðu skákmóti í Budjevoice í Tékklandi og tapaði tveim fyrstu skákunum. Í þriðju umferð, sem fram fór í gær, vann Hannes hins vegar góðan sigur á tékkenska alþjóðlega meistaranum Tomas Kraus (2479). Hann er vonandi kominn á beinu brautina!
Fjórða fram fram í dag og hefst kl. 14. Þá teflir Hannes við Indverjann Bala Chandra Prasad Dhulipalla (2419).
Tíu skákmenn tefla í flokknum og þar af 3 stórmeistarar. Meðalstigin er 2450. Hannes stigahæstur keppenda.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast almennt kl. 14)
- Auglýsing -















