Faxafen 12
108 Reykjavík
Ísland

Bikarsyrpa Taflfélags Reykjavíkur hefur fest sig í sessi undanfarin misseri og fer nú af stað sjötta árið í röð. Líkt og síðastliðinn vetur verða mót syrpunnar fimm talsins og verða tefldar sjö umferðir í hverju móti. Mótin fara fram í Skákhöll TR að Faxafeni 12.
Fyrir börn sem vilja taka framförum í skák þá er gott að byrja sem fyrst að tefla í kappskákmótum, en hingað til hefur þeim börnum sem vilja tefla á “alvöru mótum” einkum staðið til boða að taka þátt í opnum mótum. Þar er styrkleikamunur oft mikill og mótin taka langan tíma, auk þess sem mörgum börnum óar við tilhugsuninni um að tefla við fullorðna á sínum fyrstu kappskákmótum. Bikarsyrpan er svarið við því. Þessi mótaröð TR er ekki síður sniðin að þörfum þeirra barna sem dreymir um að næla sér í sín fyrstu skákstig.
Einungis börn á grunnskólaaldri (fædd árið 2004 eða síðar) sem ekki hafa náð 1600 alþjóðlegum skákstigum geta tekið þátt í mótum Bikarsyrpunnar. Þannig er styrkleikamunurinn minni en ella og börnin njóta þess betur að tefla. Tímamörkin eru jafnframt styttri, og henta börnum betur en langar 90 mínútna skákir sem tíðkast á hefðbundnum kappskákmótum fullorðinna. Mótin uppfylla öll skilyrði Alþjóða skáksambandsins FIDE og eru reiknuð til alþjóðlegra skákstiga.
Mót Bikarsyrpunnar 2019-2020 verða haldin helgarnar 30. ágú-1. sep, 1.-3. nóv, 29. nóv-1. des, 7.-9. feb, og 6.-8. mar.









