Lið Íslands endaði í 3. sæti með 15 stig í Heimsmótinu í netskák. Liðið er því komið í úrslit, en fjögur efstu mætast innbyrðis og tefla um titilinn og fjögur neðstu reyna að forða sér frá falli.
Við tökum því stigin 15 með okkur í úrslit þar sem við mætum, Rússum, Úkraínu og Serbíu (í þessari röð). Í úrslitum gildir sú regla að tvö stig fást fyrir hverja viðureign, þannig að alls eru 6 stig í pottinum í hverri umferð.
Dagsetningar viðureigna
- Laugardaginn 28. september kl. 17:30 Ísland – Rússland
- Sunnudaginn 13. október Ísland – Úkraína
- Sunnudaginn 20. október Ísland – Serbía (áætlun, á eftir að semja við þá)
Laugardaginn 28. sept kl. 17:30 – Ísland – Rússland
Við mætum mjög öflugu liði Rússa n.k. laugardag kl. 17:30. Þá þarf ekki sérstaklega að kynna til leiks, en við bárum skáran hlut frá borði í viðureign okkar í ágúst s.l.. Við eigum mikið inni og getum auðveldlega still upp mun sterkara liði en í sumar. Liðsmenn eru því hvattir til að fjölmenna í þessa viðureign!

SKRÁNING
Skráning er ekki skilyrði fyrir þátttöku, en æskilegt væri ef keppendur færu hér – https://www.facebook.com/events/719113878500950/ – og merktu við “mæti”. Það auðveldar skipuleggjendum að tryggja að við séum með eins sterkt og fjölmennt lið og mögulegt er.
DAGSKRÁIN Á LAUGARDAGINN
- 17:30 Leifturskák – https://www.chess.com/live#tm=4527
- 17:50 Hraðskák – https://www.chess.com/live#tm=4526
- 18:30 Slembiskák – https://www.chess.com/live#tm=4525
BEINAR ÚTSENDINGAR

Chess.com leggur áherslu á að allar viðureignir mótsins verði sendar út í beinni útsendingu. FM Ingvar Þór Jóhannesson mun sjónvarpa viðureignum liðsins á Twitch rásinni twitch.tv/zibbit64 í samstarfi við Chess.com. Fögnum við því mjög, enda fer þar maður með gríðarlega reynslu af slíkum útsendingum. Gott væri að allir færu á slóðina að ofan og smelltu á “follow”.
NÝLIÐAR VELKOMNIR!
Nýliðar eru sérstaklega velkomnir og það eina sem þeir þurfa að gera er að fara á síðu liðsins á chess.com og smella á join. Allir geta tekið þátt!
https://www.chess.com/club/team-iceland
VERÐLAUN
Chess.com leggur til verðlaun í formi demants áskrifta ( efstu þrjú lið í 1. deild). Þeir sem taka oftast þátt eiga því ágæta möguleika á að vinna til verðlauna.
TENGLAR
- Facebook síða Team Iceland
- Allar viðureignir Team Iceland
- Pörun, staða og úrslit
- Síða LCWL hjá Chess.com – Þar verða fréttir og upplýsingar um keppnina
- Beinar útsendingar – FM Ingvar Þór Jóhannesson verður með beinar útsendingar frá viðureignum Íslands!










