Pallamótið – atskákmót í Eyjum

    0
    1928
    Fulltrúar Eyjamanna munu án efa fjölmenna á Pallamótið.
    Hvenær:
    5. júní, 2021 @ 11:45 – 16:30
    2021-06-05T11:45:00+00:00
    2021-06-05T16:30:00+00:00
    Hvar:
    Þekkingarsetrið
    Ægisgata 2
    Vestmannaeyjabær
    Ísland
    Gjald:
    Ókeypis
    Pallamótið - atskákmót í Eyjum @ Þekkingarsetrið | Vestmannaeyjabær | Ísland

    Taflfélag Vestmannaeyja heldur atskákmót í Eyjum laugardaginn 5. júní nk kl. 11.45-16.30. Mótið er jafnframt til minningar um Pál Árnason, múrara (1945-2021) sem var traustur félagi í TV í um langt árabil.

    Mjög góð þáttataka verður í mótinu og eru skráðir keppendur hátt í 50 talsins, þar af nokkrir stórmeistarar. Keppendur eru á öllum aldri og flestir af höfuðborgarsvæðinu, en einnig nokkrir úr Eyjum og annarstaðar af landinu. Skákmótið fer fram á opna svæðinu í Þekkingarsetri Vestmannaeyja að Ægisgötu 2, á sama stað og Beddamótið minningarmót um um Bergvin Oddsson útgerðamann á Glófaxa fór fram 11. maí 2019. Eingöngu fimm mínútur frá mótsstað að Vestmannaeyjaferjunni Herjólfi.

    Mótið hefst kl. 11.45 og verða tefldar 7 umferðir í opnum flokki 10 mín. á skák + 5 sek á leik, sem gefa stig við útreikning atskákstiga. Eftir fjórar umferðir verður tekið 20 mín. kaffihlé og síðan taka við þrjár umferðir. Þórir Benediktsson verður mótsstjóri. Reiknað er með að mótinu ljúki fyrir kl. 16:30 síðdegis og þá verða kynnt úrslit og veitt verðlaun. Einnig verða veitt sérstök verðlaun fyrir þrjá efstu 16 ára og yngri. Ekkert mótsgjald og kaffiveitingar í boði TV og styrktaraðila mótsins. Að öðru leiti vísast til kynningar á mótinu og ferðatilhögun á skak.is Taflfélag Vestmannaeyja.

    - Auglýsing -