Skákdagurinn – spurningakeppni!

    0
    1092
    Hvenær:
    26. janúar, 2021 @ 20:00 – 22:00
    2021-01-26T20:00:00-01:00
    2021-01-26T22:00:00-01:00
    Hvar:
    https://us02web.zoom.us/j/82812270485
    Gjald:
    Ókeypis
    Tengiliður:
    Skáksamband Íslands
    Skákdagurinn - spurningakeppni! @ https://us02web.zoom.us/j/82812270485

    Skákdagur Íslands fer fram þriðjudaginn, 26. janúar 2021. Eðli málsins samkvæmt er minna um hátíðarhöld en í venjulega árferði. Engu að síður er ljóst að taflborðin verða tekin upp í skólum, vinnustöðum og víðar.

    Hápunkturinn að þessu sinni er spurningakeppni sem fram fer á þriðjudagskvöldið í netheimum í umsjón Ingvars Þór Jóhannessonar í gegnum forritið Kahoot.

    Spurningakeppnin er tileinkuð Friðriki Ólafssyni sem einmitt fagnar 86 ára afmæli á Skákdaginn. Sjálfsagt mun Ingvar styðjast við nýlega skákævisögu Friðriks eftir Helga Ólafsson. Ingvar ætlar einnig að skýra sérvalda skák Friðriks.

    Fyrirlesturinn og og spurningakeppnin fer fram í gegnum Zoom-forritið og eru allir velkomnir.

    Þrír efstu frá bókina The Chess Saga of Fridrik Ólafsson eftir Øystein Brekke sem kemur út í febrúarbyrjun. Bókin verður nánar kynnt á Skák.is á Skákdaginn.

    Skáksambandið ætlar að flytja inn einhverja tugi af bókinni og geta áhugasamir skráð sig fyrir henni.

    Tengill á spurningakeppnina (verður virkur rétt fyrir kl. 20, þriðjudaginn, 26. janúar).

    - Auglýsing -