Unglingameistaramót Íslands (u22) – Meistaramót Skákskóla Íslands 2020

    0
    1217
    Hvenær:
    12. febrúar, 2021 @ 18:00 – 14. febrúar, 2021 @ 21:00
    2021-02-12T18:00:00-01:00
    2021-02-14T21:00:00-01:00
    Hvar:
    Rúgbrauðsgerðin
    Borgartún 6
    Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    Ókeypis
    Tengiliður:
    Skáksamband Íslands og Skákskóli Íslands
    568 9141
    Unglingameistaramót Íslands (u22) - Meistaramót Skákskóla Íslands 2020 @ Rúgbrauðsgerðin | Reykjavík | Ísland

    Vegna Covid-19 verða mótin sem átti að halda á síða ári sameinuð. Hið sameinaða mót fer fram dagana 12.-14. febrúar nk. Teflt verður húsnæði Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6. Íslandsmeistarinn tryggir sér sæti í næsta landsliðsflokki.

    Dagskrá:

    1. umferð, kl. 18:00 föstudaginn 12. febrúar
    2. umferð, kl. 19:30,föstudaginn 12. febrúar
    3. umferð, kl.: 11:00, laugardaginn, 13. febrúar
    4. umferð, kl.: 17:00, laugardaginn, 13. febrúar
    5. umferð, kl.: 11:00, sunnudaginn, 14. febrúar
    6. umferð, kl.: 17:00 , sunnudaginn, 14. febrúar

    Ekki verður hægt að taka yfirsetu á mótinu.

    Mótið er opið öllum skákmönnum fæddum á bilinu 1998-2004. Jafnframt er yngri skákmönnum heimilt að taka þátt hafi þeir a.m.k. 1600 kappskákstig eða hafi verið meðal verðlaunahafa í flokkum u12-u15 á Íslandsmóti ungmenna 2020.

    Teflt verður um Íslandsmeistaratitilinn verði menn jafnir að vinningum. Oddastig eru látin gilda um önnur verðlaun verði menn jafnir að vinningum.

    Tímamörk í fyrstu tveimur umferðunum er 20+5 og 90+30 í seinni fjórum.

    Mótið er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

    Mótið fer fram í Skáksambandi Íslands að Faxafeni 12. Skráning er til kl. 16, fimmtudaginn, 11. febrúar á Skák.is.

    Verðlaun:

    1. sæti: Farmiði að verðmæti kr. 50 þúsund + uppihaldskostnaður kr. 35 þús. Þáttökuréttur í landsliðsflokki á Skákþingi Íslands 2021
    2. sæti: Farmiði að verðmæti kr. 40 þús.
    3. – 5. sæti Vandaðar skákbækur eða sambærilegt efni á tölvutæku formi.

    Auk þess verða veitt stigaflokkaverðlaun í mótinu:

    1800 – 2000 elo:

    1. verðlaun: Farmiði að verðmæti kr. 40 þús.

    1600 – 1800 elo:

    1. verðlaun: Farmiði að verðmæti kr. 40 þús.

    * Ekki er hægt að vinna til verðlauna nema í einum flokki.

    Mótsstjórn áskilur sér rétt til að gera breytingar á boðaðri dagskrá.

    Vignir Vatnar Stefánsson er núverandi unglingameistari Íslands og núverandi meistari Skákskóla Íslands.

    Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands

    Helgi Ólafsson, skólastjóri Skákskóla Íslands

    - Auglýsing -