Suðurlandsmótið í skólaskák 2026

    0
    103
    Hvenær:
    9. apríl, 2026 @ 09:30 – 12:00
    2026-04-09T09:30:00+00:00
    2026-04-09T12:00:00+00:00
    Hvar:
    Flúðir
    Flúðir
    Ísland
    Gjald:
    Ókeypis
    Suðurlandsmótið í skólaskák 2026 @ Flúðir | Flúðir | Hrunamannahreppur | Ísland

    Suðurlandsmótið í skólaskák fer fram fimmtudaginn, 9. apríl og er teflt á félagheimilinu á Flúðum.

    Mótið hefst kl. 9:30 og teflt er í þremur einstaklingsflokkum:

    1.-4. bekkur, 5.-7. bekkur og 8.-10. bekkur.

    Tefldar verða 7 umferðir og umhugsunartími verður 5 mín + 2 sek á hverja skák.
    Mótsstjórn áskilur sér rétt til breytinga á fyrirkomulagi.

    Reiknað er með að mótshaldið taki rúmar 2 klst.

    Mótið er opið fyrir alla grunnskólanemendur á Suðurlandi. Athugið þó að hámarki þrír frá hverjum skóla í hverjum flokki. Undantekningu má gera ef keppendur hafa teflt með a-liði skólans í skólakeppni á skólaárinu. 

    Verðlaun verða veitt fyrir 3 efstu sætin í hverjum flokki.

    Sigurvegari hvers flokks fær keppnisrétt á Landsmótinu í skólaskák sem fram fer í Ólafsvík 9.-10. maí

    Skráningarfrestur er til kl. 16, miðvikudaginn, 8 apríl.

    Þegar skráðir keppendur

    - Auglýsing -