
Baráttan um forsetastól FIDE er flókin. Eins og er eru fjórir í framboði en margir gera ráð fyrir að núverandi forseti FIDE, Kirsan Iljumazovich, muni draga framboð sitt til baka á næstunni.
Skoðum hverjir eru í framboði.
Kirsan Ilyumzhinov.
Hefur verið forseti FIDE síðan 1995. Er ákaflega umdeildur og hefur í gegnum tíðina verið sakaður um ýmislegt. Hann hefur haldið því fram að hafa verið numin burt af geimverum.
Vandræði hans hófust fyrir alvöru í lok árs 2015 þegar hann var settur á bannlista hjá Bandarískum yfirvöldum fyrir ætluð viðskipti við og fyrir hönd Sýrlands. Refsiaðgerðirnar urðu til þess að hann var nauðbeygður til að afsala sér völdum hjá FIDE og síðan í desember 2015 hefur hann aðeins verið forseti að nafninu til. Hin raunverulegu völd hafa legið hjá varaforeta FIDE, Georgios Makropoulos.
Staða Kirsan gagnvart bandarískum yfirvöldum urðu til þess að svissneski bankinn, UBS, lokaði reikningum FIDE, sem hefur átt í vandræðum að stofna reikninga í öðrum bönkum. Sjá meira á Chess.com
Þegar meðframbjóðendur hans voru kynntir til sögunnar kom ýmislegt sérkennilegt í ljós. Má þar helst nefna að frambjóðandinn Glen Stark, reyndist gervipersóna eins og lesa má um á Chess.com
Georgios Makropoulos

Grikkinn, Makrapoulos, ávallt kallaður Makro, hefur verið í stjórn FIDE síðan árið 1986 og varaforseti síðan 1996.
Makro hugðist ekki bjóða sig fram, en þegar illa gekk að finna frambjóðanda gegn Kirsan lét hann til leiðast. Makro hefur lýst því yfir að hann ætli aðeins að sitja sem forseti í fjögur ár. Hans helsta markmið sé að steypa sínum fyrrum samherja af stalli.
Makro er umdeildur og ekki síst vegna þess að hafa starfað í skjóli Kirsans.
Meðframbjóðendur hans hafa flestir verið lengi hjá FIDE en mesta athygli vekur að Malcolm Pein, aðalskipuleggjandi London Chess Classic er varaforsetaefni hans.
Pein sjálfur hefur boða að hann kunni að bjóða sig fram þegar Makro hættir árið 2022. Óhætt er að segja að framboð Pein með Makro styrki stöðu þess síðarnefnda, sem þar fær aukið tækifæri til að sækja atkvæði til Vestur-Evrópu.
Í viðtali við Chessbase sem birtist í gær dregur Malcolm Pein leiðtogahæfileika Nigel Short mjög í efa en þeim er engu að síður vel til vina.
Nánar um framboð Makro á Chess.com.
Nigel Short
Enski stórmeistarinn Nigel Short, hefur lýst yfir framboði. Short er vel kynntur með skákmanna en hefur verið nokkuð umdeildur vegna ýmissa ummæla. Hann er hefur verið stórorður í pistlum sínum í New in Chess um menn og málefni. Hann er einkar orðheppinn og vel máli farinn.
Short nýtur stuðnings Garry Kasparovs og hefur verið mjög gagnrýninn á núverandi stjórn FIDE. Hann fer mikinn á Twitter-reikningi sínum.

Það veikir þó óneitanlega framboð áskorandans fyrrverandi að Malcolm Pein styður Makro og líklegt er að atkvæði Vestur-Evrópu skiptist á milli þeirra tveggja. Short hefur svo fylgi í Afríku sem áður fylgdi Kasparov.
Lesa má nánar um framboð Nigel Short á Chess.com
Arkady Dvorkovich

Nýjasti frambjóðandinn heitir svo Arkady Dvorkovich. Þar er á ferðinni ekkert „peð“ því hann er fyrrum aðstoðarforsætisráðherra Rússlands. Hann var jafnframt formaður undirbúningsnefndar fyrir HM í fótbolta í Rússlandi.
Garry Kasparov: „I don’t think you can say that @advorkovich ‘decided’ to run for FIDE President. He was probably was told to do so. That’s how things work in authoritarian regimes“ pic.twitter.com/agx2vxeioK
— David Llada ♔ (@davidllada) June 16, 2018
Framboð Dvorkovichar mun draga að sér fjölda atkvæða. Rússar hafa í gegnum tíðina ráðið flestu sem þeir hafa viljað innan FIDE. Kreml með Pútin fremstan í flokki mun án efa styðja sinn mann með ráðum og dáðum og kannski dágóðum slatta af peningum.
Nánar um Dvorkovich og framboð hans á Chess.com.
Sjálfkjörið hjá ECU?
Oft hefur verið hart barist um völdin hjá Evrópska skáksambandinu (ECU). Svo er ekki nú því flest bendir til þess að Zurab Azmaiparashvili, núverandi forseti sambandsins, verði sjálfkjörinn.
Hvað gerir Skáksambandið?
Stjórn Skáksamband Íslands ákvað á fyrsta stjórnarfundi sínum að bíða eftir því að framboðsfrestur rynni út áður en sambandið tekur afstöðu með einhverjum frambjóðanda. Framboðsfresturinn rennur út 3. júlí nk.
Þann 28. júlí nk. hefur Skáksamband Norðurlanda boðað til fundar á Helsingjaeyri (Helsingør) í kringum Xtracon Chess Open (áður Politiken Cup). Þangað hefur frambjóðendum verið boðið til að kynna sig og stefnu sína.
Afstaða SÍ mun væntanlega ekki liggja fyrir fyrr en í fyrsta lagi eftir þann fund.














