Í fyrradag fór fram Hraðskákmót Garðabæjar. Veðrið kom ekki að sök, því telft var innandyra að venju. Tuttugu og þrír skákmenn tóku þátt og var gleðin ríkjandi.
FM Vignir Vatnar Stefánsson og GM Helgi Áss Grétarsson fengu átta vinninga af níu, en Vignir var sjónarmun á undan, vegna úrslita í innbyrðis viðureign. Hann ber því titilinn Hraðskákmeistar Garðabæjar, og óskum við honum til hamingju með það.
Þriðji með 6,5 vinninga varð svo Dagur Ragnarsson. Jóhann Ragnarsson varð efstur TG -félaga með fimm vinninga og Arnar Milutin Heiðarson tefldi best miðað við eigin stig, eða 513 stig.
Lokastaðan á Chess-Results.
Einnig voru afhent verðlaun fyrir Skákþing Garðabæjar.

- Auglýsing -
















