Ritstjóri óskar skák- og skákáhugamönnum nær og fjær gleðilegra jóla.

Enginn skák(áhuga)maður þarf að fara í jólaköttinn þessi jólin enda hægt venju samkvæmt hægt að tefla yfir hátíðarinnar.. Ritstjóra er kunnugt um eftirfarandi skákmót á milli jóla og nýárs.

EF skákmenn luma á slíkum upplýsingum um fleiri skákmót má gjarnan koma upplýsingum til ritstjóra (gunnar@skaksamband.is).

Skákáhugamenn geta svo fylgst með heimsmeistaramótinu í at- og hraðskák sem fram fer 26.-30. desember í St. Pétursborg. Taflmennskan hefst á hádegi. Nánari upplýsingar og tenglar á beinar útsendingar á Skák.is þegar nær dregur móti. Flestir sterkustu skákmenn heims taka þátt að Magnúsi Carlseni meðtöldum.

Guðmundur Kjartansson og Vignir Vatnar Stefánsson tefla í Hastings-mótinu sem hefst 28. desember nk. Feðgarnir Omar Salama og Adam og Jósef Omarssynir tefla á alþjóðlegu móti í Zurich sem hefst 26. desember. Skák.is mun fylgjast með mótunum tveimur.

Gleðileg (skák-jól)!

- Auglýsing -