Stórmeistarinn, Hannes Hlífar Stefánsson (2514), er efstur ásamt 11 öðrum á alþjóðlega mótinu í Lissabon. Í gær gerði hann tefli við venesúelska stórmeistarann Eduardo Iturrizaga (2640). Hannes hefur 4½ vinning eftir umferðirnar fimm. Í kvöld teflir hann við kínverska stórmeistarann Xu Ziangyu (2565).
Þröstur Þórhallsson (2425) gerði jafntefli við Marcin Peietuszewski (2226). Þröstur hefur 3½ vinning. Hann mætir norska FIDE-meistaranum Daniel Nordquelle (2235) í dag.
Sjötta umferð hefst kl. 19 í kvöld.
262 skákmenn frá 39 löndum taka þátt. Þar af eru 17 stórmeistarar.
- Auglýsing -

















