Ásdís Bragadóttir hætti störfum hjá Skáksambandi Íslands um síðustu mánaðarmót eftir tæplega 32 ára starf hjá Skáksambandinu. Við þau tímamótt var haldið hóf henni til heiðurs þar sem samstarfsmenn í gegnum árin kvöddu hana og þökkuðu henni fyrir frábært starf í þágu skákhreyfingarinnar. Í starfstíð Ásdís hafa setið ellefu forsetar sambandsins.
Gunnar Björnsson, forseti Skáksambandsins, og Helgi Ólafsson, skólastjóri Skákskóla Íslands, færðu Ásdísi kveðjugjafir fá SÍ og Skákskólanum.

Ásdísi er færðar miklar þakkir fyrir frábært samstarf. Hennar verður sárt saknað af skrifstofu SÍ.
- Auglýsing -















