Því miður fyrir vongóða skákmenn sem gerðu sér vonir um að fá fría útgáfu af Alphazero forritinu var um aprílgabb að ræða. Demis Hassabis er vissulega í forsvari hjá Deep Mind en það var enginn blaðamannafundur í gær og það er ekkert nýtt einvígi við Stockfish svo vitað sé. Aukinheldur er forritið ekki söluvara og ólíklegt að svo verði. Aðdáendur gervigreindar geta þó náð í LeelaZero forritið sem byggt er á sömu hugmyndafræði. Frekari upplýsingar hér.
Alls sendu 14 skákmenn beiðni um að fá forritið í hendur en nokkrir voru þó augljóslega að grínast. Besta innslagið var frá Alexander Oliver Mai sem titlaði sig sem Alexander Oliver April. Þeir sem hlupu apríl munu njóta fyllsta trúnaðar hjá Skak.is 😉
Aðdáendur Drekans og Búdapestarbragðs verða að bíta í eitthvað gott súrt epli því þeirra byrjanir leysa ekki svörtu mennina. Benedikt Jónasson getur líka ennþá haldið því fram að 1.e4 sé besti leikurinn 😉
Glöggir skákmenn hafa væntanlega tekið eftir því að skákin sem fylgdi fréttinni var að sjálfsögðu byggð á frægri skák Kasparov gegn Topalov nema hvað að greinarhöfundur breytti fyrstu leikjunum og skipti á litum!
Hér er skák Kasparov og Topalov:
















