Hannes að tafli.

Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson (2562) gerði jafntefli við bosníska stórmeistarann Predrag Nikolic (2574) í sjöundu umferð alþjóðlega mótsins í Leiden í Hollandi.

Hannes hefur 3 vinninga eftir umferðirnar sjö Í dag kl. 11 hefst áttunda og næstsíðasta umferðin. Þá mætir Hannes hollenska stórmeistaranum Roeland Pruuhssers (2562). Í lokaumferðinni sem hefst kl. 9 í fyrramálið tefli Nesi við indverska alþjóðlega meistarann Das Arrghyadip (2439).

Hannes teflir í 10 manna lokuðum flokki. Meðalstigin eru 2495 skákstig. Hannes er þriðji stigahæstur keppenda.

í dag hefst Xtracon-mótið (áður Politiken Cup) á Helsingjaeyri í Danmörku.  Alls taka um 368 skákmenn þátt í mótinu sem er er það eina alþjóðlega móti á Norðurlöndunum sem er fjölmennara en Reykjavíkurskákmótið.

Þrír íslenskir skákmenn eru skráðir til leiks. Það eru stórmeistarinn Jóhann Hjartarson (2513), alþjóðlegi meistarinn Guðmundur Kjartansson (2470) og FIDE-meistarinn Hilmir Freyr Heimisson (2270).

Fyrsta umferð hefst kl. 12. Tvær umferðir eru tefldar á morgun og hefjast þær kl. 8 og 15.

Í dag hefst einnig alþjóðlegt móti í Carrickdale á Írlandi. Um er að ræða 10 manna áfangamót. Vignir Vatnar Stefánsson (2293) tekur þátt. Um er ræða „túrbó-mót“ þar sem níu umferðir eru tefldar á fimm dögum.

- Auglýsing -