Tvær umferðir fóru fram á Riga Technical University-mótinu í gær. Stefán Steingrímur Bergsson (2190) fékk 1½ vinning. Gerði jafntefli við enska alþjóðlega meistarann Lorin D´Costa (2396) í síðari skák dagsins. Guðmundur Kjartansson (2453) og Helgi Áss Grétarsson (2412) unnu í annarri umferð og töðuðu í 3. umferð og Gauti Páll Jónsson (2057) komst á blað í gær með jafntefli í síðari skák gærdagsins. Í
Guðmundur og Helga hafa 2 vinninga, Stefán Steingrímur hefur 1½ vinning og Gauti Páll ½ vinning.
Fjórða umferð fer fram kl. 12 í dag. Mótið er semi-túrbómót. Tefldar eru 9 umferðir á 7 dögum.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast kl. 8, 12 og 14)
Summer Prague Open
Lenka Ptácníková (2089) og Sigurður Ingason (1796) taka þátt í níu umferða opnu móti í Prag dagana 2. -9. ágúst.
Sjötta umferð fór fram í gær. Lenka vann en Sigurður tapaði. Lenka hefur 3½ vinning en Sigurður hefur 1 vinning.
Sjöunda umferð fer fram í dag.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar (hefjast flestar kl. 13)
Split Open
Dagana 3.-11. ágúst fer fram alþjóðlega mótið Split Open í Króatíu. Helgi Pétur Gunnarsson (1740), Páll Þórsson (1725) og Iðunn Helgadóttir (1117) taka þátt.
Þau tóku öll yfirsetu í gær. Helgi og Páll hafa 1 vinning en Iðunn hefur hálfan vinning.
Fimmta umferð fer fram í dag.
















