Nú liggur fyrir að skákstarfið í landinu verður afar takmarkað næstu vikurnar. Það er þó engin ástæða til þess að leggjast í kör, heldur fagna því að „ástandið“ kemur ekki í veg fyrir að áhugasamir geti haldið ótrauðir áfram, hist þráðlaust og tekið þátt í skemmtilegum skákviðburðum á Chess.com.

Á dagskrá eru mót frá mánudegi til fimmtudags til að byrja með og mögulega verður þeim fjölgað ef grundvöllur sé fyrir því.

Stórmeistararnir Bragi Þorfinnsson, Hjörvar Steinn Grétarsson, Jóhann Hjartarson og Þröstur Þórhallsson hafa allir boðað þátttöku í mótunum á netinu.

Byrjað verður KR-hraðskákmóti þar sem tefldar verða 7 mínútna hraðskákir. Rétt eins á KR-kvöldinu sem eru nú komnar í hlé.

Félag Íslendinga á Chess.com, Team Iceland, mun standa fyrir fjölmörgum skákviðburðum á netinu næstu vikurnar. Leitast verður við að spegla vinsæla skákviðburði og fasta liði í mótaáætlun skákhreyfingarinnar.

Mótin eru að sjálfsögðu opin öllum Íslendingum og það kostar ekkert að taka þátt!

Þátttakendur þurfa að vera í Team Iceland.

Fyrsta mótið!

  • Mánudaginn 16. mars kl. 19:30 – (KR) hraðskákmót. 9. umferðir með 7 mínútna umhugsunartíma

Tengill: https://www.chess.com/live#t=1158144

HVAÐ ÞARF AÐ GERA TIL AÐ TAKA ÞÁTT?

Nýliðar þurfa að ganga í hópinn https://www.chess.com/club/team-iceland á Chess.com áður en keppnin hefst.

Tengill á mótið sjálft er hér að ofan, en hann má einnig finna í “Tournaments” flipanum á Chess.com/live áður en mótið hefst.

- Auglýsing -