Fimmtudaginn 2. apríl fer fram hraðskákmót (5+2 7 umferðir) sem nefnist Laugó Invitational.
Undanfarin ár hafa starfsmenn Laugalækjarskóla haldið skákmót um þetta leyti árs. Mótið í ár fer fram á chess.com og er opið öllum sem vilja taka þátt.
Tengill á mótið: https://www.chess.com/live#t=1171543
HVAÐ ÞARF AÐ GERA TIL AÐ TAKA ÞÁTT?
Nýliðar þurfa að ganga í hópinn https://www.chess.com/club/team-iceland á Chess.com áður en keppnin hefst.
Tengill á mótið sjálft er hér að ofan, en hann má einnig finna í “Tournaments” flipanum á Chess.com/live áður en mótið hefst.
Félag Íslendinga á Chess.com, Team Iceland, mun standa fyrir fjölmörgum skákviðburðum á netinu næstu vikurnar. Leitast verður við að spegla vinsæla skákviðburði og fasta liði í mótaáætlun skákhreyfingarinnar.
Mótin eru að sjálfsögðu opin öllum Íslendingum og það kostar ekkert að taka þátt!













