Það gekk afar vel hjá Vigni Vatnari Stefánssyni (2313) og Hilmi Frey Heimissyni (2352) í 5. og 6. umferð alþjóðlega unglingamótsins í Uppsölum sem fram fóru í dag. Þeir félagarnir unnu báðir báðar skákir dagsins.
Vignir vann hina búlgörsku Viktoriu Radeva (2263) sem er alþjóðlegur meistari kvenna í fyrri skák dagsins og Svíann Hugo Wernberg (2211) í þeirri síðari. Hilmir vann Finnann Arvin Rasti (2201) í fyrri skák dagsins en Tékkann Adam Frank (2129) í þeirri síðari.
Vignir hefur 4,5 vinninga og er í 2.-5. sæti. Hilmir hefur 4 vinninga og er í 6.-11. sæti.
Sjöunda umferð fer fram á morgun og hefst kl. 15. Vignir mætir þá efsta manni mótsins, sænska alþjóðlega meistaranum Milton Pantzar (2410) sem er liðsmaður í Taflfélagi Garðabæjar. Hilmir teflir við Svíann Axel Falkevall (2121)
Bein lýsing Fionu Steil-Antoni og Tiger Hillarps frá sjöundu umferð hefst um kl. 17 og er hægt að fylgjast með henni á Twitch-síðu Fionu.
















