Fimmta umferð EM ungmenna í netskák fór fram í morgun.  Í hús kom 4½ vinningur. Birkir Hallmundarson (u8), Engilbert Viðar Eyþórsson (u10), Gunnar Erik Guðmundsson (u14) og Adam Omarsson (1467) unnu sínar skákir. Ingvar Wu Skarphéðinsson (u14) gerði jafntefli.

Gunnar Erik er efstur íslensku ungmennina með 3 vinninga, Ingvar Wu hefur 2½ vinning, Matthías Björgvin Kjartansson (u12) og Benedikt Briem (u16) hafa 2 vinninga.

Sjötta umferð hefst núna kl. 15.

Úrslit 5. umferðar

 

Tefld er kappskák og er mótið reiknað til skákstiga. Í fyrsta skipti þar sem Íslendingar tefla netskák sem reiknuð er til alþjóðlegra skákstiga.

Ýmsar leiðir eru að til að fylgjast með mótinu. Í síma er afar þægilegt að nota appið Followchess.

- Auglýsing -