Hjörvar og Hannes að tafli í fyrra.

Stórmeistararnir Hannes Hlífar Stefánsson og Hjörvar Steinn Grétarsson eru efstir og jafnir. Umferð dagsins var gríðarlega spennandi og skemmtileg.

Hannes vann ótrúlegan seiglursigur á Alexander Oliver Mai. Þeir skiptust á að vilja ekki vera skiptamun yfir og Hannes stóð höllum fæti áður en hann sneri taflinu við  í endatafli.

Hjörvar tefldi gríðarlega flókna skák gegn Símoni Þórhallssyni þar sem Íslandsmeistarinn þurfti að hafa mikið fyrir vinningnum.

Vignir Vatnar Stefánsson vann sína fyrstu skák en hann lagði Þröst Þórhallsson að velli. Vignir fórnaði peði fyrir biskupaparið og hafði alltaf fínar bætur. Í endataflinu sneri hann taflinu svo sér í vil.

Bragi Þorfinnsson og Héðinn Steingrímsson skildu jafnir en Bragi hlýtur að naga sig í handarbökin þar sem hann hafði líklegast kolunnið tafl en leyfði þráskák nokkuð klaufalega undir lok tímamarkanna við 40. leik.

Guðmundur Kjartansson vann loks sigur á Hilmi Frey Heimissyni þar sem Guðmundur fékk upp draumstöðu gegn grjótgarðsuppbyggingu Hilmis.

Skákir umferðarinnar.

Staðan eftir fjórar umferðir:

Fimmta umferðin ætti að geta orðið stórskemmtileg. Þar eru spennandi stórmeistaraslagir og viðureignir efstu manna. Héðinn fær hvítt á Hannes og Hjörvar Steinn er með hvítt á Guðmund.

Skákirnar eru sýndar þráðbeint á netinu. Skákvarp Ingvars Þór Jóhannessonar hefst að jafnaði rúmlega klukkustund eftir upphaf umferðar.

Einnig er hægt að fylgjast með á Facebook-síðu íslenskra skákmanna.

Skákvarp 4. umferðar:

- Auglýsing -