Fimmta umferð Íslandsmótsins í skák hefst kl. 16. Teflt er við glæsilegar aðstæður í Bankanum – Vinnustofu á Selfossi og eru áhorfendur velkomnir.
Stórmeistarar raða sér í fimmu efstu sætin. Hjörvar Steinn Grétarsson (2542) og Hannes Hlífar Stefánsson (2525) eru efstir með 3 vinninga. Héðinn Steingrímsson (2538), Bragi Þorfinnsson og Guðmundur Kjartansson (2430) hafa 2½ vinning. Efstu menn mætast innbyrðis í viðureign dagsins!
- Hjörvar Steinn Grétarsson (3) – Guðmundur Kjartansson (2½)
- Héðinn Steingrímsson (2½) – Hannes Hlífar Stefánsson (3)
- Vignir Vatnar Stefánsson (2) – Bragi Þorfinnsson (2½)
- Hilmir Freyr Heimisson (2) – Þröstur Þórhallsson (1½)
- Alexander Oliver Mai (½) – Símon Þórhallsson (½)
Skákvarp Ingvars Þór Jóhannessonar hefst að jafnaði rúmlega klukkustund eftir upphaf umferðar og hefst því upp úr kl. 17 í dag.
Skákirnar eru sýndar þráðbeint á netinu á má nálgast á ýmsum stöðum þar.
Einnig er hægt að fylgjast með á Facebook-síðu íslenskra skákmanna.
- Auglýsing -












