Atskákmót hjá TR í kvöld. Tefldar eru fimm skákir og tímamörkin eru 10 mínútur á skákina að viðbættum 5 sekúndum á hvern leik. Teflt er í einum flokki. Mótin eru öllum opin og reiknuð til alþjóðlegra atskákstiga. Teflt er í félagsheimili TR, Faxafeni 12 og taflmennskan hefst stundvíslega klukkan 19:30. Það þarf ekki að skrá sig fyrirfram, nóg að mæta á staðinn. Umsjón með mótunum hafa þeir Eiríkur K. Björnsson og Gauti Páll Jónsson. Þátttökugjald er 500kr. en frítt er fyrir 17 ára og yngri.
Veitt eru verðlaun, 3000 króna inneign í Skákbúðina, fyrir sigurvegara mótsins, og fyrir bestan árangur miðað við eigin stig (rating performance).
Tveir urðu efstir og jafnir að vinningum á Þriðjudagsmótinu í síðustu viku en fóru ólíkar leiðir að því marki. Þannig tapaði Gauti Páll strax í 2. umferð fyrir „stigamannabananum“ Kristófer Orra Guðmundssyni en vann síðan afganginn. Adam Ómarsson fór hins vegar taplaus í gegnum mótið og sigldi skiptu efsta sæti í höfn með jafnteflum í tveimur síðustu umferðunum. Þannig báru báðir nokkuð úr býtum; Gauti Páll telst sigurvegari mótsins á stigum en Adam í öðru sæti en hirti hins vegar hin verðlaunin, fyrir besta árangur skv. frammistöðustigum. Og hækkaði að auki um rúm 33 ELO stig fyrir vikið. Og gaman að segja frá því að báðir eru skráðir á Boðsmót TR 3. – 5. júní. (Sjá hér).
Öll úrslit og stöðu Þriðjudagsmótsins má annars nálgast hér á chess-results.
Næsta Þriðjudagsmót verður 10. maí, klukkan 19:30 stundvíslega í félagsheimili TR, Faxafeni 12. Að venju fimm umferðir; 10 mín. á skák að viðbættum 5 sek. fyrir hvern leik. Frá og með næstu mánaðarmótum verða Þriðjudagsmót síðan annan hvern þriðjudag; sjá dagskrá Þriðjudagsmóta hér.