Ólympíuskákmótið hófst í dag í Chennai í Indlandi. Allt virðist hafa gengið vel í dag hjá mótshöldurum og almenn ánægja virðist vera með mótshaldið. Sá sem þetta ritar ákvað að sleppa því að kíkja á skákstað í dag þar sem hótelið sem FIDE-þingið fer fram í 90 mínútna fjarlægð frá mótsstað og ekki ljóst hvort ég kæmist inn í sjálfa keppnishöllina.

Stefnan er hins vegar tekin á skákstað á morgun. Miklar takmarkanir eru á myndatökum og því erfitt fyrir liðsstjóra og mig að ná myndum af íslensku liðunum. Búið er hins vegar að semja við ljósmyndara mótsins að koma á okkur myndum.

Íslensku liðin unnu bæði 4-0 sigra í dag en fyrirstaðan var kannski ekki mjög mikil. Liðið í opnum flokki vann 4-0 sigur á Ghana og stelpurnar Barein með sama mun.
Reynsluboltarnir Margeir Pétursson og Lenka Ptácníková hvíldu í dag.
Andstæðingar morgundagsins verða Mónakó í opnum flokki og Slóvakía í kvennaflokki.
Lið Íslands í opnum flokki skipa eingöngu stórmeistarar
- Hjörvar Steinn Grétarsson
- Hannes Hlífar Stefánsson
- Guðmundur Kjartansson
- Helgi Áss Grétarsson
- Margeir Pétursson (jafnframt liðsstjóri)
Íslenska liðið er nr. 43 í styrkleiðaröð. Alls taka 188 lið þátt.
Kvennaliðið
- Lenka Ptácníková
- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir
- Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir
- Lisseth Acevedo Mendez
- Tinna Kristín Finnbogadóttir
Liðsstjóri er Ingvar Þór Jóhannesson
Íslenska liðið er nr. 61 í styrkleikaröð. Alls taka 162 lið þátt.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results (opinn)
- Chess-Results (kvenna)
- Beinar útsendingar (opinn)
- Beinar útsendingar (kvenna)














