Kristján Örn Elíasson hefur um margra mánaða skeið stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið. Um þátt gærdagsins segir svo.
Höfundur bókarinnar Sigurbjörn J. Björnsson er margreyndur skákmaður, fyrrverandi skákmeistari Reykjavíkur og núverandi Íslandsmeistari skákfélaga með skákdeild Fjölnis.
Í þættinum koma þeir félagar inn á ákvörðun aðalfundar Skáksambands Íslands um að halda áfram útgáfu tímaritsins Skákar á prentformi en stjórn sambandsins hafði fyrr á árinu ákveðið að hætta útgáfunni , Fjórmenningaklíkuna sem heldur á heimsmeistaramót 50 ára og eldri í Kraká í Póllandi í byrjun júlí, Hans Moke Niemann sem aftur hefur rofið 2700 alþjóðlega skákstigamúrinn, Madrid Chess Festival þar sem ýmis leiðindi voru fyrirferðamikil, ásakanir um svindl o.fl. Einng kom fram að Jeanne Cairns Sinquefield, meðstofnandi Saint Louis Chess Club, tilkynnti við upphaf Cairns Cup mótsins í síðustu viku að fimm fyrstu bandarísku konurnar sem næðu stórmeistaratitli fyrir 4. júlí 2029 yrðu verðlaunaðar sérstökum „Cairns Chess Queens“ verðlaunum að upphæð 100.000 dollurum eða um 14. milljónum íslenskra króna. Alþjóðaskáksambandið hefur ákveðið að heimsmeistaramótið í at- og hraðskák skuli fara fram í New York í Bandaríkjunum á milli jóla og nýárs.
Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.















