Kvennaliðið í gær nema Hallgerður sem tók myndina.

Ólympíuskákmótið í Búdapest hefst í dag. Pörun fyrstu umferðar er klár.

Íslenska liðið í opnum flokki er það 46. í styrkleikaröðinni af 197 liðum. Reyndar vantar 20 lið í fyrstu umferð væntanlega vegna vandræða að fá vegabréfsáritanir. Eitthvað að þeim gæti komið inn í 2. umferð.

Liðið í opnum flokki mætir sveit Miðbaus-Gíneu sem er nr. 148 í styrkleikaröðinni. Fyrsta borðs maður Íslendinga, Vignir Vatnar Stefánsson, hvílir í dag enda teflt mikið í aðdragenda mótsins. Guðmundur Kjartansson teflir sína fyrstu skák á fyrsta borði og Hilmir Freyr Heimisson teflir sína fyrstu skák ólympíuliði Íslands. Styrkleikamunurinn er mikill á 2.-4. borði en föluvert minni á fyrsta borði.

 

Kvennaliðið er það 72. sterkasta af 183 liðum. Þar vantar reyndar einnig 20 lið.

Íslenska liðið mætir sveit bresku jómfrúareyjanna sem er það 167. sterkasta. Rétt eins og í opnum flokki hvílir fyrsta borðs maður Íslendinga. Reynsluboltinn Lenka Ptácníková situr heima í dag og varaforseti SÍ, Jóhanna Björg Jóhannsdóttir, teflir á fyrsta borði. Ungu stelpurnar Iðunn Helgadóttir (16 ára) og Guðrún Fanney Briem (14 ára) tefla sínar fyrstu skákir á ólympíuskákmóti.

Andstæðingarnir eru allir stigalausir og við vitum því lítið um styrkleika þeirra.

 

Heimasíða mótsins

- Auglýsing -