Íslensku sveitirnar unnu sínar viðureignir í 9. umferð Ólympíuskákmótsins í Búdapest.
Sveitin í opnum flokki lagði Trínidad og Tóbagó 3 – 1. Vignir Vatnar, Hannes Hlífar og Helgi Áss unnu sínar skákir en Hilmir Freyr tapaði.

Íslenska sveitin í kvennaflokki vann öruggan 3,5 – 0,5 sigur á Taílandi. Lenka, Hallgerður Helga og Iðunn unnu sínar skákir en Jóhanna gerði jafntefli.

Með sigrinum í sinni skák tryggði Iðunn Helgadóttir sér titilinn WCM, woman candidate master, þar sem hún hefur náð 3,5 vinningum af 7 mögulegum á Ólympíuskákmóti.
Skák.is óskar Iðunni til hamingju með árangurinn og segir áfram Ísland!
Tíunda umferð mótsins hefst kl. 13:15 að íslenskum tíma á morgun, laugardag.
- Auglýsing -













