Úrslitaeinvígi Helga Ólafssonar og Hjörvars Steins Grétarssonar hefst með upphitun kl. 20. Í stúdíó mæta Helgi og Hjörvar í stutt viðtöl. Spekingarnir Björn Þorfinnsson og Vignir Vatnar Stefánsson mæta í sófann og spá í spilin. Hvor er líklegri til sigurs? Skólastjórinn fyrrverandi eða nemandinn? Lengjan telur Hjörvar Stein eilítið líklegri til sigurs.

Hvor er líklegri Helgi eða Hjörvar?

Sjálft úrslitaeinvígið hefst að lokinni upphitun á milli 20:30 og 20:45.

Það verður svo upphitun á upphitunni, þ.e. sérstakt upphitunarmót haldið í Arena. Mótið er opið öllum 18 ára og eldri. Teflt verður á veitingastaðnum og góð tilboð á mat og drykk. Þar verður risaskjár þar sem hægt verður að fylgjast með útsendinginni beint.

Teflt verður tilviljunarmót. Gömlu Monrad-spjöldin verða tekin upp  Tefldar verða 5 umferðir þar sem dregið verður hverjir mætast í hverri umferð.  Það verður því algjör tilviljun hverjir mætast – algjör tilviljun hvort að menn fái oft hvítt eða svart.  Mögulega geta mæst oftar en einu sinni. Gestgjafi verður Björn Þorfinnsson.

Tímamörk eru 3+2. Tefldar eru 5 umferðir.

Verðlaun eru:

  1. 20.000, 2. 10.000 og 3. 5.000. Ef menn jafnir verður dregið hver fær hvaða verðlaun.

Hámarksfjöldi keppenda er 24 – fyrstir skrá sig fyrstir fá keppnisrétt.

- Auglýsing -