Íslenska liðið á HM öldungasveita vann fínan sigur á Ungverjum sem var fínt tap við fyrsta tapinu í umferðinni áður gegn Kazökum. Íslenska liðið safnar nú vopnum á frídegi með fjóra sigra og eitt tap og mótið enn mjög opið og allt getur gerst! Framundan eru lykilviðureignir upp á toppbaráttuna!

Viðureign fimmtu umferðar leit svona út:

Jóhann Hjartarson hvíldi í umferðinni og hafa því allir liðsmenn hvílt eina umferð.

Margeir Pétursson tók því slaginn á efsta borði og hafði svörtu mennina enn eina ferðina. Andstæðingur Margeirs, alþjóðlegi meistarinn Csaba Csiszar tefldi byrjunina mjög hratt og hvasst og virtist vel undirbúinn.

Eftir að hafa leikið öllu nánast samstundis virtist hann kominn út úr undirbúningi í 12. leik, hugsaði í yfir 40 mínútur og lék 12.0-0? sem er masnnsfórn sem einfaldlega gengur ekki upp. Margeir tók manninn og varðist og vann!

Þröstur tefldi mjög traust á öðru borði og ruggaði bátnum ekekrt of mikið en hafði alltaf dýnamíska möguleika ef á þyrfti að halda. Jafntefli var niðurstaðan sem hentaði fínt.

Á þriðja borði hafði Helgi Ólafsson svart og tefldi traust gegn Zoltan Varga og slíðruðu þeir sverðin nokkuð fljótt.

Jón L. Árnason virðist í feiknagóðu formi á þessu móti og náði sér í enn einn vinninginn! Jón yfirspilaði andstæðing sinn nokkuð auðveldlega og náði í glæsilegan og mikilvægan vinning!

Niðurstaðan 3-1 fyrir okkar menn!

Kazakar og Ítalir skildu jafnir en Slóvakar náðu þeim í efsta sætinu. Íslendingar eru svo stutt frá ásamt Bandaríkjamönnum og Englendingum.

Í fimmtu umferð fær íslenska liðið sveit Englendinga. Lið númer 2 og 3 í styrkleikaröð og verður gaman að fylgjast með á morgun!

Englendingarnir þekkt númer og framundan erfið viðureign!

Heimsmeistaramótið í Prag er níu umferðir og verður frídagur 22. febrúar að loknum fimm umferðum en að öðru leiti verður teflt á hverjum degi.

- Auglýsing -