Englendingar skelltu íslenska liðiðinu á HM öldungasveita í sjöttu umferð og þar með ljóst að baráttan um að komast á pall er orðin mun þyngri. Englendingar höfðu stríðsgæfuna með sér í liði og tefldu einnig heilt yfir betur og unnu 3,5-0,5 sigur á okkar mönnum.
Viðureign dagsins leit svona út:
Þröstur Þórhallsson hvíldi í umferð dagsins.
Jóhann fékk það hlutaverk að mæta Michael Adams, stigahæsta skákmanni mótsins. Adams er enn feykisterkur og sýndi það í þessari skák. Jóhann tók slaginn í Marshall-árásinni en segja má að viðhaldskostnaður hvítu stöðunnar hafi snemma verið orðinn of erfiður. Tap á fyrsta borði.
Margeir fékk fína stöðu með svörtu í sikileyjarvörn gegn Íslandsvininum Stuart Conquest. Í miðtaflinu virtist taflið snúast hvítum í hag með miklum skriðþunga þar til hvítur stóð til vinnings.
Á þriðja borði hafði Helgi Ólafsson hvítt og virtist gera allt gegn Peter Wells. Wells varðist þó af hörku í verri stöðu og má segja að hann hafi unnið sig upp úr töpuðu tafli þrisvar til fjórum sinnum og náði að lokum jafntefli með miklum barningi.
Jón L. Árnason tapaði sinni fyrstu skák og fjórða borði og satt best að segja tefldi andstæðingur hans Mark Hebden skínandi góða skák að því er virðist. Ekkert féll með okkar mönnum í dag!
Niðurstaðan stórt tap 0,5-3,5:
Úrslitin gera það að verkum að Ísland fellur niður töfluna, alla leið niður í 9. sæti
Í sjöundu umferð mæta Íslendingar hollensku liði.
Hér er á ferð sveit sem strákarnir hafa mætt áður og ættu að vinna að öllu óbreyttu og er það hreinlega nauðsynlegt ef sveitin ætlar að blanda sér í baráttuna um að komast á verðlaunapall!
Heimsmeistaramótið í Prag er níu umferðir og verður frídagur 22. febrúar að loknum fimm umferðum en að öðru leiti verður teflt á hverjum degi.